Klárlega einn af leikjum ársins í N1-deildinni 24. febrúar 2008 09:15
Fram og Haukar mætast í toppbaráttuleik N1-deildar karla í handbolta í Framhúsinu í Safamýri kl. 16:00 í dag. Liðin skildu jöfn 29-29 í Framhúsinu í lok september og Haukarnir unnu 26-20 tæpum mánuði síðar að Ásvöllum í N1-deildinni fyrr í vetur. Gunnar Berg Viktorsson, fyrrum leikmaður Fram og núverandi leikmaður Hauka, telur leikinn afar mikilvægan fyrir bæði lið. „Eins og þetta er að spilast þá er þetta bara einn af úrslitaleikjum N1-deildarinnar, það er nokkuð ljóst. Við erum búnir að tapa þremur stigum upp á síðkastið og gerum okkur fyllilega grein fyrir því hversu mikilvægur þessi leikur er upp á framhaldið. Ef við vinnum, þá komum við okkur aftur í þægilega stöðu til að anda aðeins og við stefnum að sjálfsögðu að sigri eins og alltaf,“ sagði Gunnar Berg sem telur Haukaliðið ekki endilega vera að koma á óvart með að sitja á toppi deildarinnar. „Við stefndum alltaf að því að vera í toppbaráttunni og það er eitt af því sem þjálfarinn Aron Kristjánsson kom með inn í Haukaliðið, það er þessi sigurvilji og þetta sigurhugarfar,“ sagði Gunnar Berg og Andri Berg Haraldsson, leikmaður Fram, er ekki síður hrifinn af áhrifum þjálfara síns Ferenc Antal Buday á Fram liðið. „Ég er gríðarlega ánægður með Ferenc og hann er að koma með nýjar æfingar inn í þetta og jafnvel æfingar sem maður hefur ekki kynnst áður á Íslandi,“ sagði Andri Berg sem er gamall FH-ingur og á því ekki í miklum erfiðleikum með að gíra sig upp í leikinn gegn Haukum. „Ég hef nú reyndar ekki verið mjög sigursæll gegn Haukaliðinu í gegnum tíðina og hef fulla löngun til að breyta því með Fram í framtíðinni. Bæði við og Haukar höfum verið að spila fastan varnarleik og fínan sóknarleik í deildinni og ég held að þessi leikur verði klárlega einn af leikjum ársins,“ sagði Andri Berg að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira