Björn Bergmann: Spila áfram í gulu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. október 2008 15:54 Björn Bergmann í leik með ÍA.
Björn Bergmann Sigurðarson sagði í samtali við Vísi í dag að ekki skemmdi fyrir að hans nýja félag í Noregi skartaði sömu litum í búningum sínum og uppeldisfélagið á Skipaskaga. Björn skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Lilleström sem leikur í gulum og svörtum búningum, rétt eins og ÍA. „Það er auðvitað alveg frábært og skemmir ekki fyrir," sagði hann í léttum dúr. „Annars líst mér vel á allt það sem félagið hefur upp á að bjóða. Þjálfarinn er með mjög háleit markmið fyrir félagið, völlurinn er frábær og æfingaaðstaðan afar góð." Hann mun hefja æfingar hjá Lilleström þann 1. desember næstkomandi en Björn Bergmann verður átján ára í febrúar næstkomandi. En þrátt fyrir ungan aldur hefur hann leynt og ljóst stefnt að því að komast í atvinnumennsku. „Ég held að þetta sé skref í rétta átt fyrir mig. Upphaflega átti ég nú ekki von á því að fara til Noregs en þegar þetta kom upp á borðið leist mér mjög vel á þennan kost." Hann ætlar sér vitaskuld að keppa um sæti í byrjunarliðinu. „Það er ekki spurning. Þetta hefur verið strembið tímabil hjá Lilleström og við ætlum okkur að rétta úr kútnum."
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport „Þetta er alveg ótrúlegur grís“ Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Fótbolti Gæti verið valinn fyrstur í nýliðavalinu en líka endað í tuttugu ára fangelsi Sport Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig Fótbolti Fleiri fréttir Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Sjá meira