Fílharmónía í Langholti 10. desember 2008 06:00 Magnús Ragnarsson stjórnandi Fílharmóníunnar á tónleikum í kvöld.
Aðventutónleikar Söngsveitarinnar Fílharmóníu verða í kvöld og föstudagskvöld 12. desember í Langholtskirkju, kl. 20. Kórinn mun að venju flytja fjölbreytta og vandaða dagskrá þar sem finna má skemmtileg og hátíðleg jólalög frá ýmsum löndum í bland við klassískar perlur sem koma fólki í hátíðarskap. Aðventutónleikar Söngsveitarinnar eru fastur liður fjölmargra tónlistarunnenda en tónleikarnir í ár eru tuttugustu aðventutónleikar kórsins. Yfirskrift tónleikanna að þessu sinni er upphaf sálmsins „Með gleðiraust og helgum hljóm“ eftir Magnús Stephensen sem Magnús Ragnarsson kórstjóri hefur tvinnað saman við húsganginn „Ljósið kemur langt og mjótt“ í útsetningu sem hljómar nú í fyrsta sinn. Tveir efnilegir einsöngvarar af yngri kynslóðinni syngja með kórnum að þessu sinni þau Margrét Sigurðardóttir og Benedikt Ingólfsson. Organisti á tónleikunum er Steingrímur Þórhallsson. Kórstjóri og stjórnandi tónleikanna er Magnús Ragnarsson. Nú eru ríflega sjötíu virkir félagar í kórnum. Miða má nálgast hjá kórfélögum, í versluninni 12 Tónum og við innganginn. - pbb
Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Robbie Williams einhverfur Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira