Menningu miðlað í miðbænum 24. júlí 2008 06:00 Miðbærinn Miðlar menningu, en tökum við eftir því?
Sigurlaug Ragnarsdóttir listfræðingur annast leiðsögn um útilistaverk í miðbænum í kvöld kl. 20 þegar lagt verður upp í áttundu kvöldgöngu Kvosarinnar sem menningarstofnanir Reykjavíkurborgar standa fyrir. Gangan tekur um klukkustund en í henni mun Sigurlaug kynna ólíkar aðferðir við miðlun útilistaverka, gildi miðlunar og upplifun einstaklings á henni. Í göngunni verður lögð áhersla á að skoða útilistaverk á hugmyndafræðilegum grundvelli og draga þannig fram nýjar áherslur og nýja sýn auk þess að vekja upp spurningar um mikilvægi verkanna. Gangan hefst við Hafnarhúsið en boðið verður upp á stutt spjall í lokin. Sigurlaug er listfræðingur og menningarmiðlari. Hún hefur rannsakað og safnað saman upplýsingum um útilistaverk í eigu og umsjón Reykjavíkurborgar með miðlun í huga. Sýningarsalir og kaffitería Hafnarhússins er opin til kl. 22 öll fimmtudagskvöld en þar stendur nú yfir sýningin Tilraunamaraþon. Aðgangur að safninu er ókeypis. - vþ
Mest lesið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Cruise afþakkaði boð Trump Lífið Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Lífið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira