Mourinho: Ranieri er gamall og hefur ekki unnið neitt 4. ágúst 2008 17:45 Mourinho er farinn að láta til sín taka á Ítalíu eins og búast mátti við NordcPhotos/GettyImages
Jose Mourinho er ekki lengi að stela sviðsljósinu hvar sem hann kemur og í dag baunaði Inter-þjálfarinn skotum á Claudio Ranieri, þjálfara Juventus. Svo virðist sem litlir kærleikar séu milli þessara tveggja fyrrum knattspyrnustjóra Chelsea á Englandi, því Ranieri lýsti því yfir í viðtali í gær að ólíkt Mourinho - þyrfti hann sjálfur ekki að vinna bikara til að sanna ágæti sitt fyrir sjálfum sér. Mourinho var ekki lengi að svara fyrir sig í dag og sagðist ekki vilja taka þátt í orðastríði við Ranieri - en hóf svo skothríðina strax á eftir. "Ég er á Ítalíu til að vinna en ekki til að taka þátt í deilum. Ég vil einbeita mér að því sem ég er að gera með Inter. Ætli það sé ekki rétt sem Ranieri sagði um mig. Ég geri miklar kröfur á sjálfan mig og ég þarf að vinna sigra til að sanna mig fyrir sjálfum mér. Þetta er ástæðan fyrir því að ég hef unnið svona marga bikara á ferlinum," sagði Mourinho og hraunaði yfir Ranieri. "Ranieri hefur hinsvegar unnið keppnina um meistara meistaranna einu sinni og einn lítinn bikar. Hann hefur hugarfar þess sem er sama hvort hann vinnur eða ekki. Hann er of gamall til að breyta hugarfari sínu, enda er hann að verða sjötugur. Hann er gamall og hefur ekki unnið neitt," sagði Mourinho í samtali við sjónvarpsstöð Inter.
Ítalski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Sjá meira