Ronaldinho ekki lengur nógu góður fyrir brasilíska landsliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. maí 2009 11:30 Ronaldinho komst ekki í 23 manna hóp Brasilíu. Mynd/AFP
Ronaldinho var ekki valinn í 23 manna landsliðshóp Brasilíu sem mun taka þátt í Álfubikarnum í næsta mánuði. Landsliðsþjálfarinn Dunga er búinn að missa trúna á hinn 29 ára leikmann sem fyrir aðeins nokkrum misserum var talinn besti leikmaður heims. Ronaldinho hefur alls leikið 87 leiki fyrir Brasilíu og skorað í þeim 32 mörk. Hann hefur skorað 8 mörk í 26 leikjum með AC Milan í ítölsku deildinni á þessu tímabili. Ronaldinho lét engin vonbrigði í ljós þegar blaðamenn gengu á hann í kjölfar þess að hann var ekki valinn í landsliðið. „Ég er bara að hugsa um næsta leik á móti Roma. Ég hef ekkert breyst. Ég reyni alltaf að spila vel og reyna að hjálpa mínu liði til að vinna. Nú þarf ég að halda gleði minni fyrir liðið mitt," sagði Ronaldinho. Ronaldinho hefur verið mikið á bekknum hjá AC Milan og það hefur örugglega haft sitt að segja að hann er ekki valinn í landsliðið. „Ég bjóst við að spila meira og það hefur verið erfitt að sætta sig við að vera á bekknum. Það vilja allir leikmenn spila alla leiki," sagði Ronaldinho. „Við eigum mikilvægan leik um helgina þar sem við verðum að vinna. Næsta tímabil vil ég gera góða hluti með þessu liði í Meistaradeildinni," sagði Ronaldinho.
Ítalski boltinn Mest lesið Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Enski boltinn „Ég hélt að við værum komin lengra“ Enski boltinn „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun Fótbolti „Betra er seint en aldrei“ Enski boltinn Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Körfubolti Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Fótbolti Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Enski boltinn ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Handbolti Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Fótbolti Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enski boltinn Fleiri fréttir „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta „Allt er þegar þrennt er“ Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Allar tilfinningarnar í gangi Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik „Tölfræðin er eins og bikiní“ Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld Táningi hótað lífláti þrátt fyrir sigurinn á Víkingum „Maður er búinn að vera á nálum“ Hentu ferðatöskum inn á völlinn í miðjum leik Danirnir hjá Norwich fögnuðu óförum Víkinga berir að ofan Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Sjáðu þáttinn um fyrsta N1-mót kvenna: Smá stress, snitsel og Sandra María skrifaði á skó Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Sjáðu dramtíkina á Króknum í gær: Aftur fengu Þróttarakonur rautt spjald Karólína Lea valin best í fyrsta leik Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum „Galið og fáránlegt“ Sjá meira