Rúnar: Óþarflega spennandi lokamínútur Hjalti Þór Hreinsson skrifar 12. nóvember 2009 21:11
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, var sammála blaðamanni í því að lið hans hefði gert lokamínúturnar í leiknum gegn Stjörnunni í kvöld óþarflega spennandi. Akureyri hafði að lokum nauman 25-24 sigur en Stjarnan gat jafnað leikinn í síðustu sókninni þar sem Hörður Flóki Ólafsson varði tvö skot þeirra. „Þetta er bara ekki vottur af skynsemi eða reynslu hvernig við gerum síðustu mínúturnar spennandi. Ég er ekki ánægður með það," sagði Rúnar sem var þó ánægður með sigurinn. „Ég er ánægður með hann. En við vorum ekki skynsamir undir lokin, fengum á okkur tvær mínútur og spiluðum ekki nógu vel." „Við spiluðum ágætis sókn í seinni hálfleik og það var ekki mikið til að vera hræddur við í markinu. En fyrri hálfleikurinn fannst mér frábær og varnarleikurinn í seinni hálfleik var að vinna þetta upp. En við getum ekki leyft okkur að slaka svona á því við virðumst ekki finna taktinn aftur. Hefði ekki komið til stórkostleg leiks hjá Flóka hefðum við verið í verri málum." „Við erum að leiða leikinn en það virðist vera sem sú staða sé of þægileg fyrir okkur. Við förum að spila slakari handbolta og fáum það svoleiðis í hnakkann að við getum ekki staðið undir því. Ég er ánægður með að þegar menn spila vel en ekki þegar menn missa það svona niður," sagði Rúnar sem hrósaði Herði í hástert. „Ég hef ekki séð hann svona lengi." Hörður Flóki vildi sjálfur ekki koma í viðtal eftir leikinn.
Olís-deild karla Mest lesið Uppgjör: KA - Vestri 1-1 | Sæst á jafnan hlut fyrir norðan Íslenski boltinn Lofar Heimi rauðvínsflösku úr efstu hillu Íslenski boltinn Sendir sófasérfræðingum tóninn: „Líklega eini þjálfarinn í heiminum“ Íslenski boltinn Haaland lyfti Man City upp í sjötta sætið Enski boltinn Missir Mbappé af Íslandsförinni? Fótbolti Sjáðu laugardagshasarinn í Bestu deild karla Fótbolti Uppgjör: FH - Þróttur 4-0 | Evrópusætið innan seilingar fyrir FH Fótbolti Sjáðu dramatíkina á Brúnni og mörkin hjá Manchester United og Arsenal Fótbolti „Hann er topp þrír í deildinni“ Körfubolti „Á endanum fengum við á okkur mark í blálokin“ Enski boltinn Fleiri fréttir Misjafnt gengi Íslendingaliðanna Valur áfram eftir góðan sigur KA áfram eftir þægilegan sigur í Eyjum Ómar Ingi frábær með Magdeburg í naumum sigri Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH Sjá meira