Kári Kristján: Þetta var algjört box Henry Birgir Gunnarsson skrifar 5. mars 2009 21:54 Kári stóð í miklum slagsmálum á línunni í kvöld. Mynd/Stefán „
Þetta var svakalegur leikur og algjört box í raun og veru. Þeir byrjuðu harðir, mjög harðir og komust upp með að spila frekar gróft allan tímann. Engu að síður dugði það ekki til hjá þeim," sagði línujaxl Haukanna, Kári Kristján Kristjánsson, eftir sigur Íslandsmeistaranna á Fram í kvöld. „Það voru geðveikar varnir í fyrri hálfleik í þessum leik enda aðeins 10-11 í leikhléi. Maggi varði eins og rotta í markinu hjá þeim og við vorum að fara með afar mörg dauðafæri allan leikinn. Við vorum að fara með færi þegar við áttum að vera búnir að rassskella þá," sagði Kári og bætti við að það hefði ekki hjálpað Fram að Rúnar Kárason hefði verið að spila illa og enginn annar stigið upp í staðinn. „Varnarleikurinn hjá þeim hélt í fyrri hálfleik en svo brotnaði hann í þeim síðari. Vörnin hjá okkur var aftur á móti klassi allan leikinn." Kári stóð heldur betur í ströngu á línunni og var hraustlega tekið á Eyjamanninum stæðilega. Blaðamaður hugsaði á stundum þegar hann sá átökin hvernig stæði á því að menn nenntu að spila á línunni. „Ég gat ekkert í öðrum stöðum og því endaði ég inn á línunni þar sem maður reynir að gera sitt besta," sagði Kári léttur. „Þetta getur verið algjört sjálfsmorð á stundum. Ég var klæddur tvisvar úr peysunni og svo þóttist enginn hafa gert neitt. Svo öskra allir inn á að maður sé bara auli ef maður skorar ekki."
Olís-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira