Meistarakeppni ökumanna á Stöð 2 Sport 27. október 2009 10:36 Michael Schumahcer og Sebastian Vettel unnu meistarakeppni ökumanna í fyrra. mynd: kappakstur.is
Meistarakeppni ökumanna, Race of Champions verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í 3.-4. nóvember. Samningar náðust í dag um að sýna fráþessum viðburði sem verður á Olympíuleikvanginum í Bejing í Kína. Michael Schumacher er meðal keppenda eins og síðustu ár og Jenson Button, nýrkrýndur heimsmeistari í Formúlu 1, en 16 ökumenn taka þátt. Má nefna Sebastian Vettel og David Coulthard, rallkappann Miko Hirvonen sem barðist við Sebastian Loeb um meistaratitilinn, mótorhjólameistarann Mick Doohan, Tom Kristensen sem er áttfaldur sigurvegari í Le Mans og Travis Pastrana sem er þrefaldur sigurvegari í X-Games. Í keppni meistaranna keppa ökumenn á samhliða brautum og með útsláttarfyrirkomulagi. Brautin á Olympíuleikvanginum í Bejing verður 20% hraðari en á Wembley í fyrra og breiðari, sem býður upp á meiri tilþrif. Ökumenn munu keppa á alskyns farartækjum í mismunandi umferðum, allt frá grindarbílum upp í fjórhjóladrifum rallbílum. Sýnt verður frá keppni milli landa á þriðjudag og einstaklingskeppni á miðvikudag og í báðum tilfellum milli 12 og 3 að degi til. Útsendingarnar eru síðan endursýndar helgina eftir. Sjá meira um mótið
Mest lesið Allt í skrúfunni fyrir HM: „Enginn viðburður“ Fótbolti „Svo hringdi kærastan mín og ég er búinn að vera hér síðan“ Íslenski boltinn Þrumuræða Óskars Hrafns: „Kremja þá eins og fokking skordýr undir sólanum á okkur“ Íslenski boltinn Oddaleikirnir á sitt hvorri rásinni Körfubolti Besta sumarvinna sögunnar? Fótbolti „Ekkert grín heldur algjörlega fáránlegt“ Íslenski boltinn Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Körfubolti Sagður þjást en vill enga vorkunn Enski boltinn DeChambeau mun einbeita sér að Youtube ef LIV verður að engu Golf Röð áfalla en trúin til staðar: „Ekkert pláss fyrir bull“ Körfubolti Fleiri fréttir Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúlan snýr aftur til Tyrklands Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Sjá meira