Haukarnir eru eins og Detroit Pistons Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. apríl 2009 16:00 Rúnar Kárason. Mynd/Anton „
Það er virkilega góð stemning hjá okkur fyrir leikinn í kvöld og menn staðráðnir í því að klára dæmið á heimavelli," sagði Framarinn Rúnar Kárason við Vísi en Fram og Haukar mætast öðru sinni í undanúrslitum N1-deildar karla í kvöld. Fram leiðir einvígið 1-0 eftir óvæntan sigur á Ásvöllum og kemst með sigri í kvöld í úrslitarimmuna gegn annað hvort Val eða HK. „Það er enn mikið hungur í liðinu og við ætlum okkur stóra hluti," sagði Rúnar sem segir alltaf erfitt að mæta Haukum sem státa af frábærri vörn. „Haukarnir eru eiginlega eins og Detroit Pistons. Þeir eru ákaflega harðir í horn að taka og ég á ekki von á að þeir muni draga úr hörkunni í kvöld," sagði Rúnar en Pistons-strákarnir hafa oftar en ekki gengið undir nafninu „Bad Boys". Hann segist ekki eiga sér neinn óskaandstæðing í úrslitum eftir að Fram kemst þangað eins og hann gerir ráð fyrir. „Ég var á rútunni á leið heim frá Akureyri eftir lokaleik mótsins og þá fékk ég hugboð um að Fram og HK mætist í úrslitum. Ég held mig við að það muni gerast," sagði Rúnar sposkur. HSÍ TV verður með báða leikina í beinni sjónvarpsútsendingu. Hægt er að sjá leik HK og Vals hér og leik Fram og Hauka hér.
Olís-deild karla Mest lesið Lofar Heimi rauðvínsflösku úr efstu hillu Íslenski boltinn Sendir sófasérfræðingum tóninn: „Líklega eini þjálfarinn í heiminum“ Íslenski boltinn „Hann er topp þrír í deildinni“ Körfubolti Sjáðu laugardagshasarinn í Bestu deild karla Fótbolti „Á endanum fengum við á okkur mark í blálokin“ Enski boltinn Missir Mbappé af Íslandsförinni? Fótbolti Dagskráin í dag: Sunnudagur til sælu Sport „Hef ekki verið nægilega góður í sumar“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Stjarnan 3-2 | Fundinn: Jónatan Ingi Íslenski boltinn Sjáðu lygilegar lokamínútur á Meistaravöllum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Sjá meira