Nýliði Sauber byrjaði að keppa sex ára 14. október 2010 13:50 Sergio Perez frá Merxíkó byrjaði að keppa sex ára gamall.
Mexíkaninn Sergio Perez heimsótti Sauber liðið sem hann keppir með á næsta ári og skoðaði aðstæður, en hann verður liðsfélagi Kamui Kobayashi sem vakti mikla lukku í japanska kappakstrinum um síðustu helgi. Perez er í öðru sæti í GP2 mótaröðinni sem er næsta mótaröð fyrir neðan Formúlu 1 og er í öðru sæti á eftir kappa sem heitir Pastor MacDonaldo. Hann kynnti sér húsakynni Sauber og mátaði keppnisbíl liðsins. "Ég kom til að kynnast framtíðarliði mínu og hvar ég mun búa. Ég vil búa nálægt Sauber liðinu og verja sem mestum tíma því á fyrsta árinu. Ég hlakka til að fá reynslu með liðinu. Þetta er frábært fólk og það var vel tekið á móti mér", sagði Perez í tilkynningu frá liðinu í dag. Hann er spenntur fyrir tækfærinu sem Sauber veitir honum. "Ég þekki Kobayahshi vel, en við vorum báðir að keppa í GP2 árið 2009. Hann er frábær ökumaður og ég met hann mikils. Hann hefur gert góða hluti í Formúlu 1 og verður því gott viðmið fyrir mig. Við verðum að vinna vel saman og skila sem bestum árangri." "Þetta er draumur sem rættist fyrir mig. Ég byrjaði að keppa sex ára gamall og hef alltaf keppt af kappi til að komast í Formúlu 1. Ég fór einn til Evrópu 15 ára gamall og það var erfitt. Ég tók áhættuna og núna hlakka ég til að ná árangri í Formúlu 1", sagði Perez.
Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn „Þriðji leikhlutinn fór með þetta“ Sport „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Körfubolti Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira