Sverre: Áttum ekki von á því að þetta yrði svona auðvelt Elvar Geir Magnússon skrifar 27. nóvember 2010 20:30 Sverre Jakobsson.
Sverre Jakobsson átti góðan leik í vörn Grosswallstadt þegar liðið burstaði Hauka í EHF-bikarnum í handbolta í kvöld. Þýska liðið fer áfram með samanlagða þrettán marka forystu úr leikjunum tveimur. „Ég var einmitt að vonast til þess að við myndum mæta svona til leiks í þennan leik. Við vorum að berjast fyrir því á síðasta tímabili að komast í þessa keppni og það tókst. Svo mætum við þessu Haukaliði sem við eigum að vinna örugglega samkvæmt pappírnum," sagði Sverre. „Við áttum í erfiðleikum í fyrri leiknum. Það þýðir ekki bara að vita það að við séum betri, það þarf að sýna það. Við erum skrefinu á undan þeim. Það hafa margir spurt mig hvort þetta hafi verið vanmat í fyrri leiknum en ég tel svo ekki vera. Við vorum bara lélegir á meðan Haukar voru skynsamir og eiga hrós skilið fyrir þann leik." „Við vorum ákveðnir í að láta það endurtaka sig og fyrri hálfleikurinn í dag skóp sigurinn. Við vorum yfir allan tímann og höfðum bara gaman að þessu. Nú erum við komnir áfram og það var markmiðið." Er ekki gaman fyrir þig að koma heim til Íslands og spila? „Rosalega gaman. Manni fannst pressan á manni vera meiri en í venjulegum leik og ég sagði við strákana að það væri ekki möguleiki á að ég myndi fyrirgefa þeim ef þeir myndu spila svipaðan leik og síðast. Sem betur fer þá svöruðu þeir kallinu mínu," sagði Sverre. „Það var gaman að spila þennan leik og sem betur fer var þetta öruggur sigur hjá okkur. Þetta varð aldrei neitt stress. Við áttum ekki von á því að þetta yrði svona auðvelt en við stjórnuðum leiknum frá upphafi til enda."
Olís-deild karla Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Fleiri fréttir Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Sjá meira