Valdimar: Það væla allir í deildinni yfir Atla línumanni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2010 23:08 HK-maðurinn Valdimar Fannar Þórsson er hér búinn að láta vaða í kvöld. Mynd/Stefán
Valdimar Fannar Þórsson tryggði HK 25-25 jafntefli á móti Val í kvöld með því að skora síðasta mark leiksins úr vítakasti 55 sekúndum fyrir leikslok. Valdimar skoraði 9 mörk í leiknum. „Við horfum á þetta sem unnið stig því þetta var orðið mjög erfitt. Við sýndum góðan karakter í lokin," sagði Valdimar en HK lenti tveimur mörkum undir og tveimur mönnum færri þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum. „Ég held að þeir hafi unnið kaflann 1-0 þegar við vorum tveimur mönnum færri þannig að það var vel sloppið og svo komum við öflugir til baka. Þeir missa mann útaf í tvær mínútur og við kláruðum það þokkalega," sagði Valdimar. Atli Ævar Ingólfsson lék vel í kvöld og átti tvö síðustu mörkin, skoraði það fyrra af línunni eftir sendingu Valdimars og fiskaði síðan vítið sem gaf jöfnunarmarkið. „Þeir voru eitthvað að væla yfir Atla línumanni en það væla allir í deildinni yfir honum. Hann er bara þrusu línumaður og er mjög öflugur fyrir okkur," sagði Valdimar. „Þetta var gríðarlega mikilvægur leikur og með þessu jafntefli þá höldum við þeim ennþá fyrir aftan okkur. Það er mjög mikilvægt því við hefðum bara getað verið í fimmta sæti eftir leikinn þegar bara fjórir leikir voru eftir. Það er mjög mikilvægt að halda þeim fyrir aftan okkur," sagði Valdimar en HK er í 3. sæti deildarinnar einu stigi á undan FH og Val. „Þetta voru bara sterkar varnir hjá báðum liðum. Það vantaði aðeins auka hjá okkur eins og síðasta leik en núna allavega töpuðum við ekki. Það er jákvætt," sagði Valdimar að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið Uppgjör: KA - Vestri 1-1 | Sæst á jafnan hlut fyrir norðan Íslenski boltinn Lofar Heimi rauðvínsflösku úr efstu hillu Íslenski boltinn Sendir sófasérfræðingum tóninn: „Líklega eini þjálfarinn í heiminum“ Íslenski boltinn Haaland lyfti Man City upp í sjötta sætið Enski boltinn Missir Mbappé af Íslandsförinni? Fótbolti Sjáðu laugardagshasarinn í Bestu deild karla Fótbolti Uppgjör: FH - Þróttur 4-0 | Evrópusætið innan seilingar fyrir FH Fótbolti Sjáðu dramatíkina á Brúnni og mörkin hjá Manchester United og Arsenal Fótbolti „Hann er topp þrír í deildinni“ Körfubolti „Á endanum fengum við á okkur mark í blálokin“ Enski boltinn Fleiri fréttir Misjafnt gengi Íslendingaliðanna Valur áfram eftir góðan sigur KA áfram eftir þægilegan sigur í Eyjum Ómar Ingi frábær með Magdeburg í naumum sigri Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH Sjá meira