Upp og niður hjá Birgi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. september 2010 14:47
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson hóf leik á sínu fyrsta móti á Evrópumótaröðinni í heilt ár í dag. Íslandsmeistarinn er að taka þátt í móti sem fram fer í Austurríki. Birgir Leifur fór mjög illa af stað í dag og fékk skolla á fyrstu tveim holunum. Hann nældi í fugl á fjórðu en fékk tvöfaldan skolla á fimmtu og aftur skolla á áttundu. Á níundu holu fór Birgir loks í gang en hann setti þá niður þrjá fugla í röð. Hann fékk annan fugl á fimmtándu og var skollalaus á seinni níu holunum. Hann kom að lokum í hús á 73 höggum eða einu höggi yfir pari. Hann var þá jafn mörgum öðrum í 69. sæti. Hann er þess utan átta höggum á eftir efsta manni.
Golf Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira