Sigurvegari kvöldsins hefur unnið titilinn í 9 af 10 skiptum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2010 17:30 Úr síðasta leik Vals og Hauka. Mynd/Valli
Haukar og Valur mætast í kvöld í þriðja sinn í úrslitaeinvígi sínu um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild karla. Staðan er 1-1 eftir að Haukar unnu fyrsta leikinn 23-22 á Ásvöllum á föstudagskvöldið og Valsmenn svöruðu með 22-20 sigri í Vodafone-höllinni á sunnudaginn. Leikur kvöldsins hefst klukkan 19.30 á Ásvöllum. Mikilvægi leiksins í kvöld sést best á sögu úrslitaeinvígisins. Í tíu úrslitaeinvígum karla þar sem staðan hefur verið jöfn 1-1 þá hefur sigurvegari þriðja leiksins unnið Íslandsmeistaratitilinn í níu skipti. Átta sinnum hefur sigurvegari þriðja leiksins meira að segja klárað einvígið strax í fjórða leiknum og unnið því einvígið 3-1. Það er aðeins ein undantekning frá því að liðið sem vinnur þriðja leikinn, í stöðunni 1-1, klári Íslandsmeistaratitilinn. Það er lið KA-manna frá 2001. KA-menn unnu þá þriðja leikinn á móti Haukum örugglega með níu marka mun á heimavelli (27-18) en Haukarnir gáfust ekki upp heldur tryggðu sér titilinn með því að vinna síðustu tvo leikina.Einvígi um Íslandsmeistaratitil karla þar sem staðan hefur verið 1-11992 FH-Selfoss Þriðji leikur: FH vann 28-25 í Kaplakrika Íslandsmeistari: FH (3-1)1993 Valur-FH Þriðji leikur: Valur vann 25-23 í Laugardalshöll Íslandsmeistari: Valur (3-1)1994 Haukar-Valur Þriðji leikur: Valur vann 29-22 á Strandgötu Íslandsmeistari: Valur (1-3)1995 Valur-KA Þriðji leikur: Valur vann 24-23 á Hlíðarenda Íslandsmeistari: Valur (3-2)1997 Afturelding-KA Þriðji leikur: KA vann 29-26 að Varmá í Mosfellsbæ Íslandsmeistari: KA (1-3)1999 Afturelding-FH Þriðji leikur: Afturelding vann 26-23 að Varmá í Mosfellsbæ Íslandsmeistari: Afturelding (3-1)2000 Fram-Valur Þriðji leikur: Valur vann 27-22 í Framhúsinu í Safamýri Íslandsmeistari: Valur (1-3)2001 KA-Haukar Þriðji leikur: KA vann 27-18 í KA-húsinu [Undantekningin] Íslandsmeistari: Haukar (2-3)2003 Haukar-ÍR Þriðji leikur: Haukar unnu 34-22 á Ásvöllum Íslandsmeistari: Haukar (3-1)2009 Haukar-Valur Þriðji leikur: Haukar unnu 28-25 á Ásvöllum Íslandsmeistari: Haukar (3-1)2010 Haukar-Valur Þriðji leikur: Í kvöld klukkan 19.30 á Ásvöllum
Olís-deild karla Mest lesið Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ Íslenski boltinn Stjörnurnar mættu með gufupotta til að hita takkaskóna Fótbolti Sló met Eiðs Smára Íslenski boltinn Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Íslenski boltinn Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk Íslenski boltinn Ítalía myndi ekki þiggja boðsmiða á HM Fótbolti Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Enski boltinn Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Körfubolti Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn Fleiri fréttir Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Viktor Gísli aftur með yfir fimmtíu prósent markvörslu Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Elín Klara og félagar sópuðu Skuru í sumarfrí Riðill Íslands á EM klár: Mætast aftur eftir frækna sigurinn Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla Haukakonur með frábæran sigur í Eyjum Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn