Veigar Páll og Ondo skoruðu fyrir Stabæk Jón Júlíus Karlsson skrifar 25. apríl 2011 17:47 Veigar Páll skoraði úr víti í dag. Mynd/Anton
Veigar Páll Gunnarsson kom félögum sínum í Stabæk á bragðið í dag með marki úr vítaspyrnu á 25. mínútu í 3-1 sigri liðsins gegn Fredrikstad í norsku úrvalsdeildinni í dag. Gilles Mbang Ondo, sem lék með Grindavík í Pepsi-deildinni, skoraði þriðja mark Stabæk og lagði einnig upp annað markið sem Alain Junior Ollé Ollé skoraði. Birkir Már Sævarsson lék allan leikinn í hægri bakverðinum hjá Brann sem tapaði 1-3 fyrir Molde á heimavelli. Indriði Sigurðsson og Birkir Bjarnason voru einnig í byrjunarliðinu hjá Viking sem tapaði 0-1 á heimavelli fyrir Strømsgodset þar sem gestirnir skoruðu sigurmarkið skömmu fyrir leikslok. Með sigrinum fer Stabæk upp í 6. sæti deildarinnar með 9 stig. Brann er í 10. sæti með 7 stig en Viking með 4 stig í 14. sæti. Strømsgodset er í efsta sæti deildarinnar með 12 stig eftir fimm leiki. Þá var einnig spilað í norsku B-deildinni. Atli Heimisson kom inn á sem varamaður er Asker gerði 2-2 jafntefli við Bryne og þá skoraði Kristján Örn Sigurðsson annað mark Hönefoss sem vann 2-0 sigur á Löv-Ham. Guðmann Þórisson spilaði allan leikinn fyrir Nybergsund sem vann 2-1 sigur á Sandnes Ulf. Steinþór Freyr Þorsteinsson, leikmaður síðarnefnda liðsins, gerði slíkt hið sama. Úrslit dagsins í norska boltanum: Lillestrom 5-0 Haugesund Aalesund 1-0 Sogndal Brann Bergen 1-3 Molde Sarpsborg 08 2-0 Start Kristiansand Stabaek 3-1 Fredrikstad Tromso 2-1 Odd Grenland Viking 0-1 Stromsgodset
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Hættur aðeins þrítugur Golf Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Sagði látna systur sína hafa tryggt sigurinn ótrúlega Sport Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Fótbolti Fleiri fréttir Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Freyr himinlifandi með íslensku strákana Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Sjá meira