Fjárfestar skoða möguleika á að kaupa Formúlu 1 3. maí 2011 23:06 Lewis Hamilton kemur í mark sem sigurvegari í Kína. Mynd: Getty Images/Clive Mason
Fjárfestingafélagið EXOR og News Corporation fjölmiðlasamsteypan, sem er í eigu Rupert Murdoch staðfestu síðdegis í dag að verið er að frumkanna möguleg kaup á Formúlu 1. Fyrirtækin tvö sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu þessa efnis, en autosport.com greindi frá þessu og í frétt á BBC Sport segir að fulltrúi fyritækjanna sé þegar búinn að ræða við eigendur Formúlu 1. EXOR er í umsjá Agnelli fjölskyldunnar á Ítalíu, sem á 30% í Fiat og 60% í knattspyrnufélaginu Juventus. Í frétt autosport.com segir að EXOR og News Corp ætli að nálgast aðra hluthafa í íþróttinni, til að skoða mögulegt tilboð á yfirtöku, áður en rætt er við núverandi eigendur, sem er fyrirtækið CVC Capital Partner eða rætt við Bernie Ecclestone. Ecclestone stýrir m.a. FOM, sem sér um sölu á sjónvarpsréttinum í Formúlu 1 og á hlut í CVC. Í yfirlýsingu sem EXOR og News Corp sendi frá sér segir í lauslegri þýðingu: EXOR, eitt að stærstu fjárfestingarfyrirtækjum Evrópu og News Corporation, alheims fjölmiðlasamsteypan staðfesta að þau eru á frumstigi þess að kanna möguleika á að mynda fjárfestingahóp með það að markmiði að gera langtíma áætlun um þróun á Formúlu 1, þátttakendum og áhorfendum til heilla. Á næstu vikum og mánuðum mun EXOR og News Corporation nálgast hugsanlega minnihluta samstarfsaðila og lykil hluthafa í íþróttinni. Það er engin fullvissa um að þetta leiði til tilboðs til eigenda Formúlu 1. Í frétt á BBC Sport í dag staðfestir CVC fyrirtækið að EXOR sé nú þegar búið að hafa samband og málið sé á frumstigi og á vingjarnlegum nótum. EXOR menn viti að Formúla 1 er í einkaeigu CVC og sé ekki til sölu. Ef selja ætti Formúlu 1 þarf samþykki Formúlu 1 keppnisliðanna, CVC og FIA. CVC keypti Formúlu 1 réttinn fyrir 1.8 miljarða sterlingspunda árið 2006. Ecclestone, sagði eftirfarandi á BBC Sport í dag: "Persónulega veit ég að CVC vill ekki selja, þannig að þetta verður erfitt. Ég sé CVC áfram, 100% til frambúðar", sagði Ecclestone. "Ef einhver kemur og býður þeim meiri peninga en þetta er virði, þá munu þeir augljóslega segja: Setjumst niður og ræðum málin. En mín tilfinning er að það gerist ekki. Ég skil ekki hvers vegna fyrirtæki sem er eins stórt og News Corp þarf að leita samstarfsaðila. Fyrst var Carlos Slim nefndur og núna nýr aðili."
Formúla Íþróttir Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Mæta „reyndari og erfiðari“ andstæðingum í búrinu í Framheimilinu Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Enski boltinn Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira