Guðmundur Árni: Við fundum okkar leik aftur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2011 21:57 Úr leik liðanna í kvöld. Mynd/Vilhelm
Guðmundur Árni Ólafsson skoraði 11 mörk úr 14 skotum fyrir Hauka í kvöld í öruggum fimm marka sigri liðsins á Fram en sjö marka hans komu á rúmlega tuttug mínútna kafla í kringum hálfleikinn. „Það hentar mér vel að við séum farnir að keyra upp hraðann. Fyrir þennan leik vorum við að horfa á gömul myndbönd þannig að við fórum að spila sama bolta og við vorum að gera áður. Við fundum okkar leik aftur og það skilaði góðum árangri í dag," sagði Guðmundur Árni kátur. „Vonandi höldum við því áfram og fáum áfram hraðaupphlaupin því þar kann ég vel við mig allavega," sagði Guðmundur Árni. „Þetta var virkilega mikilvægur sigur. Við vorum í fimmta sæti fyrir þennan leik og við ætlum okkur að komast í úrslitakeppnina. Við töpuðum síðasta leik á móti HK og vorum búnir að gera jafntefli við Selfoss og Aftureldingu í leikjunum á undan honum. Við þurftum því á sigri að halda til þess að halda okkur í baráttunni um fjórða sætið," sagði Guðmundur. „Ég fann það að okkur leið vel inn á vellinum og stemmningin kom innan frá. Það er það sem við þurfum að gera, við þurfum að finna kraftinn inn í okkur og koma með útgeisluna því þá gengur þetta vel hjá okkur. Við þurfum líka að halda áfram að keyra upp hraðann og sýna gamla Haukaleikinn sem við erum svo sterkir í," sagði Guðmundur Árni.
Olís-deild karla Mest lesið Gylfi Sigurðsson: Mikill léttir að tryggja fyrsta titilinn Íslenski boltinn „Maður er orðinn Íslandsmeistari í sínu fyrsta giggi“ Íslenski boltinn Er Kristján Fannar ÍR-ingur eða Keflvíkingur? Körfubolti Sjáðu fögnuð Víkinga þegar Íslandsmeistaratitillinn var tryggður Íslenski boltinn „Þarf að halda í við Mbappé og Kane“ Enski boltinn „Þá fann ég á liðinu að það yrði ekki snúið við“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - FH 2-0 | Víkingur er Íslandsmeistari Íslenski boltinn Hákon Arnar og félagar náðu í óvænt stig gegn Evrópumeisturunum Fótbolti „Ákveðin blæðing stoppuð í dag“ Íslenski boltinn Selfoss úr leik þrátt fyrir sigur Handbolti Fleiri fréttir Selfoss úr leik þrátt fyrir sigur Misjafnt gengi Íslendingaliðanna Valur áfram eftir góðan sigur KA áfram eftir þægilegan sigur í Eyjum Ómar Ingi frábær með Magdeburg í naumum sigri Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Sjá meira