Verðlaunavítamín á markað á Íslandi 30. ágúst 2011 11:00 Sandra segir að allir geti fundið vítamín við sitt hæfi innan Vitabiotics-vítamínlínunnar. Mynd/GVA
Við erum að setja á markað stóra vítamínlínu frá Bretlandi, undir merkjum vítamínrisans Vitabiotics," segir Sandra Kristjánsdóttir, vörumerkjastjóri hjá Icepharma, umboðsaðila Vitabiotics á Íslandi. „Þetta eru markhópatengd vítamín sem hugsuð eru þannig að fólk geti tekið eina vítamíntöflu sem inniheldur allt sem viðkomandi þarf á að halda," segir Sandra og útskýrir það nánar: „Allar töflurnar eru með sama steinefna- og fjölvítamíngrunninn, þannig að allir fá nauðsynleg grunnvítamín sem líkaminn þarfnast, en hver og ein tegund inniheldur svo alls kyns aukavítamín og bætiefni sem henta þörfum markhópsins hverju sinni," upplýsir Sandra og nefnir sem dæmi að til séu töflur fyrir konur og karla á öllum aldri, heilann og minnið, íþróttafólk, ófrískar konur, börn, konur á breytingaskeiði og svo mætti lengi telja. Sandra segir að allir geti fundið vítamín við sitt hæfi innan Vitabiotics-línunnar. „Fyrirtækið sem framleiðir vítamínin er breskt og vítamín þess eru þau mest seldu þar í landi. Fyrirtækið hefur tvisvar sinnum hlotið konunglegu verðlaunin „The Queen"s Awards for Enterprise" í Bretlandi. Einstök vítamín frá Vitabiotics hafa einnig hlotið ýmis verðlaun, til dæmis frá Boots-keðjunni í Bretlandi," segir Sandra og bætir við að vítamínin séu öflug og traustsins verð. Vitabiotics hefur einnig stutt vel við bakið á afreksfólki í íþróttum í Bretlandi og eru fjölmargir þeirra á leið á Ólympíuleikana í London 2012 og segja vítamínin hafa skilað sér auknum árangri. Vitabiotis-vítamínin fást í öllum apótekum og einnig í völdum matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Viðskipti erlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Fyrsti vinnudagurinn eftir frí og níu góð ráð Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira