Bankaráðið vill fá að ákveða laun Steinþórs Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. janúar 2012 09:46 Bankaráð vill sjálft fá að ákveða laun Steinþórs Pálssonar bankastjóra Landsbankans.
Bankaráð Landsbanka Íslands vill að bankaráðið sjálft, en ekki kjararáð, úrskurði um laun bankastjórans. Þetta kemur fram í umsögn bankaráðsins við frumvarpi fjármálaráðherra um kjararáð, sem Steingrímur J. Sigfússon lagði fram 2. desember síðastliðinn, tæpum mánuði áður en hann sagði skilið við embættið. Þessi skoðun bankaráðsins er í samræmi við skoðun sem Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans lýsti sjálfur í þættinum Klinkinu sem birtur er á viðskiptasíðu Vísis. Þar sagðist hann telja að laun sín væru ekki samkeppnishæf en þau eru aðeins um þriðjungur af launum bankastjóra hinna bankanna. Ástæðan er sú að Landsbankinn er eini bankinn sem er í meirihlutaeigu ríkisins og því gilda reglur um kjararáð um Landsbankann en ekki hina bankana. Steinþór sagðist vonast til þess að lögum verði breytt svo kjararáð geti ekki bundið hendur stjórnar bankans. Samkvæmt lagafrumvarpi um kjararáð sem liggur fyrir þinginu er ekki gert ráð fyrir breytingum á þann hátt sem Steinþór, og reyndar bankaráðið líka, kallar eftir. Hins vegar er í frumvarpinu gert ráð fyrir að laun ákveðinna manna sem heyra undir kjararáð geti orðið hærri en laun forsætisráðherra. Lög sem sett voru eftir bankahrunið segja hins vegar að enginn sá sem heyrir undir kjararáðið skuli vera hærri en forsætisráðherrann.
Klinkið Mest lesið Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Segir Seðlabankann vera að falla í sömu gryfju og fyrir hrun Viðskipti innlent Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Viðskipti innlent Rannsókn: Vinnustaðapartí algengur vettvangur kynferðislegrar áreitni Atvinnulíf Stefán Atli gengur til liðs við Öryggismiðstöðina Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Allir sýknaðir í Aurum-málinu Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Sjá meira