Petrov ekur fyrir Caterham í stað Trulli Birgir Þór Harðarson skrifar 17. febrúar 2012 16:45 Vitaly Petrov mun aka fyrir Caterham í Formúlunni á næsta ári nordicphotos/afp
Rússneski ökuþórinn Vitaly Petrov sem var á mála hjá Lotus liðinu á síðasta tímabili hefur nú gengið til liðs við Caterham og mun aka þar í ár í stað Jarno Trulli sem ekið hefur fyrir liðið frá því það kom fyrst til sögunnar árið 2010. Petrov hefur verið orðaður við Caterham undanfarnar vikur þó bæði keppnissæti liðsins hafi verið skipuð. Það hefur jafnframt legið í loftinu að Jarno Trulli væri á útleið úr Formúlu 1 eftir að hafa ekið í mótaröðinni síðan 1997. Í ár verður því enginn ítalskur ökuþór á ráslínunni í fyrsta sinn síðan 1970. Petrov missti sæti sitt hjá Renault liðinu - sem nú er Lotus - eftir að Kimi Raikkönen og Roman Grosjean voru ráðnir þar inn. Petrov mun nú aka við hlið Heikki Kovalainen hjá Caterham. Í viðtali við Autosport sagðist Petrov vera ánægður með að fá tækifæri hjá liði sem hefði jafn mikinn eldmóð og Caterham. Caterham liðið er í eigu malasíska auðjöfursins Tony Fernandes sem einnig á knattspyrnuliðið Queens Park Rangers sem leikur í ensku úrvalsdeildinni.
Formúla Mest lesið KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Enski boltinn Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira