Raul kominn með 400 mörk | Schalke burstaði Wolfsburg Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. febrúar 2012 12:45
Spánverjinn Raul skoraði sitt 400. mark á ferlinum í 4-0 sigri Schalke á Wolfsburg á sunnudag. Þá skoraði Hollendingurinn Klaas Jan Huntelaar tvö mörk auk þess að brenna af vítaspyrnu. „Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri 400. mark mitt en það er gaman að ná þessum áfanga," sagði Raul að leiknum loknum. Hann benti þó á að mikilvægast hefði verið að landa sigrinum. Raul skoraði 323 mörk í treyju Real Madrid, 44 mörk fyrir spænska landsliðið og hefur nú komið boltanum 33 sinnum í netið á átján mánuðum sem leikmaður Schalke. Schalke er eftir sigurinn í fjórða sæti deildarinnar með 44 stig. Liðið er aðeins stigi á eftir Bayern München sem varð að sætta sig við markalaust jafntefli gegn Freiburg á laugardag. Bæjarar taka á móti Schalke í stórleik á Allianz-leikvanginum í München á sunnudag. Dortmund, sem vann 1-0 útisigur á Herthu Berlín á laugardag, vermir toppsætið með 49 stig. Á hæla þeim kemur Borussia Mönchengladbach með 46 stig eftir 2-1 útisigur á Kaiserslautern. Fallegasta mark helgarinnar skoraði Japaninn Shinji Okazaki með hjólhestarspyrnu í 4-2 tapi Stuttgart gegn Hannover. Markið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Þýski boltinn Mest lesið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Hættur aðeins þrítugur Golf Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Sagði látna systur sína hafa tryggt sigurinn ótrúlega Sport Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Fótbolti Fleiri fréttir Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Freyr himinlifandi með íslensku strákana Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Sjá meira