20 punda urriði á Þingvöllum 7. maí 2012 23:39 Urriðanum, sem vó 9,2 kíló, var sleppt - að sjálfsögðu.
Mikal Wajitas, sem kom til landsins gagngert til að veiða urriða í Þingvallavatni, landaði einum 20 punda um helgina. Sagt er frá þessu á vef Veiðikortsins. „Það er búið að vera mikið um fallega fiska í þjóðgarðinum síðustu daga," segir á vef Veiðikortsins. „Við höfum heyrt að tugum fallegra urriða sem hafa veiðst þrátt fyrir að kuldinn hafi verið að hrella veiðimenn þegar líða tekur á daginn." Wajtas og félagar hans fengu marga fallega fiska þá daga sem þeir voru við veiðar. Einn fiskur stóð þó upp úr en það var urriði sem vó 9,2 kíló eða um 20 pund. Sannkallaður risaurriði sem fékk að synda áfram sína leið eftir að hafa setið fyrir á mynd.
Stangveiði Mest lesið 101 sm lax úr Eystri Rangá Veiði Haustveiðin góð í Ytri Rangá Veiði Ytri Rangá stingur af Veiði Lifnar yfir Hólsá og Eystri Rangá Veiði Fín vorveiði í Vatnsdalsá Veiði Eldislaxar veiðast í mörgum ám Veiði Laxinn kominn upp á efri svæðin í Kjós Veiði Vikuveiðin í laxveiðiánum og lokatölur víða Veiði Nýjar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði Laxveiðin langt undir væntingum Veiði