Ljósmyndakeppni meðal skotveiðimanna 10. september 2012 08:00 Gæsaveiðatímabilið fer vel af stað. Skotvís hvetur veiðimenn til að taka þátt í ljósmyndasamkeppninni.
Skotveiðifélag Íslands (Skotvís) gengst fyrir ljósmyndasamkeppni meðal veiðimanna og áhugamanna um ljósmyndun, en samkeppnin er liður í því að byggja upp myndabanka sem verður aðgengilegur þeim sem þurfa að notast við myndir af veiðum eða veiðitengdum atburðum. Skotveiðimenn eru hvattir til að sækja sér innblástur úr siðareglum Skotvís, sem eru tólf að tölu. Tíu þúsund króna verðlaun verða veitt fyrir bestu myndina í hverjum flokki siðareglnanna. "Sérstök verðlaun verða einnig veitt þeim aðila sem nær bestu seríunni að mati dómnefndar, þ.e. einni mynd í hverjum flokki – SKOTVÍS áskilur sér rétt til að nota vinningsmyndir í kynningarefni sínu og því þurfa myndir að berast í fullri upplausn," segir á vef Skotvís. Myndum ber að skila á netfangið veidimyndir@skotvis.is Skilafrestur er til 31. desember 2012 en nánari upplýsingar um keppnina má finna hér.
Stangveiði Mest lesið 7 laxar á land við opnun Norðurár Veiði Bjarni vill aftur í formanninn Veiði Vilja rækta Ísafjarðará Veiði Ennþá mikið vatn í Hörgá Veiði Lokatölur úr laxveiðiánum Veiði Hvítasunnuviðtal: Ýktu veiðisögurnar eru skemmtilegri Veiði Mikið líf í Varmá Veiði Mótorhjólalögga vill verða formaður SVFR Veiði 93 sm lax veiddist í Elliðaánum Veiði Veitt og sleppt á rjúpnaveiðum Veiði