Þjóðfræði í kvikmynd 21. nóvember 2012 11:27 Þjóðfræðinemarnir Björk Hólm Þorsteinsdóttir og Ólafur Ingibergsson standa fyrir kvikmyndasýningum í Bíó Paradís. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fjórir þættir, byggðir á rannsóknum í þjóðfræði, verða frumsýndir í Bíói Paradís annað kvöld. Þjóðfræðinemarnir Björk Hólm Þorsteinsdóttir og Ólafur Ingibergsson hafa síðastliðin þrjú sumur unnið að heimildarþáttaröðinni Þjóðfræði í mynd, með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og Háskóla Íslands. Fjórir þættir sem litu dagsins ljós síðastliðið sumar verða frumsýndir annað kvöld, 22. nóvember, kl. 20 í Bíói Paradís. Auk þess verður formlega opnuð ný heimasíða verkefnisins, þar sem finna má alla þættina sem framleiddir hafa verið undanfarin ár. Hver þáttur er fimmtán til tuttugu mínútna langur og er byggður á niðurstöðum nýlegra BA- eða MA-rannsókna þjóðfræðinema. Þau Björk og Ólafur segja þættina gefa almenningi innsýn í rannsóknir háskólasamfélagsins en meginmarkmið verkefnisins sé þó að framleiða fræðsluefni sem nýta má sem innslög í kennslu með fram hefðbundnu kennsluefni í framhaldsskólum. Þau segjast enn fremur með þessu framtaki feta ótroðnar slóðir við framleiðslu á fræðsluefni fyrir framhaldsskóla á Íslandi. "Þættirnir eru einnig verðug kynning fyrir fræðimennina sem að baki hverri ritgerð standa og vekja verðskuldaða athygli á metnaðarfullum rannsóknum þeirra sem oft og tíðum fá litla athygli utan háskólasamfélagsins," segir Ólafur. Þáttaröðin hefur vakið talsverða athygli undanfarin ár eins og sýnir sig í því að þættirnir sem áður hafa verið birtir hafa samtals verið skoðuð nærri 8.000 sinnum á netinu hingað til. Frumsýningin er öllum opin og aðgangur ókeypis, svo lengi sem húsrúm leyfir. Að sýningunni lokinni munu Björk og Ólafur svara spurningum úr sal. - fsb
Menning Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira