Þetta er ungt og leikur sér Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 29. mars 2012 14:30
The Hunger Games Leikstjórn Gary Ross Leikarar: Jennifer Lawrence, Josh Hutcherson, Woody Harrelson, Elizabeth Banks, Lenny Kravitz, Stanley Tucci, Donald Sutherland, Wes Bentley. Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilgreindri framtíð. Norður-Ameríka heitir nú Panem og er skipt niður í 12 fylki. Einu sinni á ári leggur hvert fylki til strák og stelpu (á aldursbilinu 12-18 ára) sem send eru í óhuggulega útsláttarkeppni þar sem 24 ungmenni berjast um sigur, en aðeins eitt þeirra mun lifa keppnina af. Myndin er vandlega markaðssett fyrir unglinga sem hlusta á tilfinningaþrungið indípopp, og minnir að mörgu leyti á kúltúrinn í kringum blóðsugubókmenntir Anne Rice á 10. áratugnum. Það er leikkonan unga, Jennifer Lawrence (sem fékk óskarstilnefningu í fyrra), sem fer með hlutverk hinnar 16 ára gömlu Katniss Everdeen, en hún býður sig fram í stað yngri systur sinnar sem senda á í sláturkeppnina. Lawrence er hæfileikarík og hrífur áhorfendur með sér, en auk þess að vera leikin í bogfimi er Everdeen einnig hjartahlý og hugrökk. Framtíðarheimurinn er íburðarmikill að sjá og sviðsmynd, búningar og hártíska undirstrika þann ógnvænlega hedónisma sem ríkir í Panem. Stanley Tucci er frábær í hlutverki smeðjulegs sjónvarpsþáttastjórnanda sem skartar hvítustu tönnum sem sést hafa í bíó. Það er hann sem sér um að leiða lömbin til slátrunar, og það gerir hann með kynþokka og stæl. Það er fyrri hlutinn sem gerir myndina að því sem hún er. Persónurnar fá góða kynningu, sem og sögusviðið, og hasarinn hefst ekki fyrr en seinasti áhorfandinn hefur gefið sig á vald sögunnar. Ef vel er rýnt má finna ágæta ádeilu á þann elegans sem umlykur stríðshetjur og þátt fjölmiðla í hernaðarbrölti Bandaríkjamanna og annarra. En þó við höldum okkur bara í grunnu lauginni er The Hunger Games spennandi, skemmtileg og eilítið öðruvísi mynd, og ekki eingöngu fyrir tárvota táninga. Niðurstaða: Vel heppnuð vísindaskáldsaga sem flæðir vel.
Mest lesið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ Lífið Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Lífið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið Auður segir skilið við Gímaldið Menning Fleiri fréttir Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Sjá meira