Sykursíkið Atli Fannar Bjarkason skrifar 7. apríl 2012 06:00 Páskadagur er á morgun og ég er búinn með helminginn af páskaegginu mínu. Þegar ég segi „helminginn" meina ég „eiginlega allt". Ég er kámugur á puttunum eftir óhóflega neyslu af unaðslegu súkkulaði og sé ekki eftir neinu. Samt er ég meðvitaður um að sykur er ávanabindandi eitur sem er að drepa okkur öll. Dr. Robert Lustig, prófessor við Kalíforníuháskóla í San Francisco, er nú í mikilli krossferð gegn sykri. Hann segir þessa yndislegu hvítu kristalla vera á ástæðuna fyrir mörgum af helstu lífstílssjúkdómum sem herja á íbúa hins vestræna heims. Hann hefur örugglega rétt fyrir sér og þetta kemur ekki neinum á óvart. Sælgætisframboð á Íslandi er um 6.000 tonn á ári, samkvæmt landlækni. Það eru svona 36 milljónir poka af blandípoka fyrir hundraðkall. Svo fáum við auðvitað fullt af sykri úr mjólkurvörum, brauðmeti og öðrum mat. Nammibarir taka meira pláss í matvöruverslunum en ostur og pokarnir eru svo stórir að það þarf að skófla ofan í þá kílói til að sjá högg á vatni. Fyrsti nammibarinn sem ég sá var í Kaupfélagi Árnesinga á Selfossi fyrir svona 15 árum. Hann var rúmur metri á breidd og innihélt kannski 30 tegundur af sælgæti. Í mesta lagi. Í dag er sykur alls staðar. Ég þarf stundum að taka bólgueyðandi verkjalyfið Voltaren. Töflurnar eru agnarsmáar, bleikar og jú, sykurhúðaðar. Sykurhúðaðar verkjatöflur (?). Það sem við áttum okkur ekki á, en lyfjafyrirtækin eru eflaust með á hreinu, er að unaðslega sætt bragð sykurs virkjar frumhvöt sem segir okkur að það sem við erum að borða er gott. Ekki bara á bragðið, heldur beinlínis gott fyrir okkur. Næringarríkt. Hollt. Auðvitað er samt enginn að segja að við eigum að hætta að borða sykur. Þetta er bara spurning um jafnvægi. Ég ætla að klára páskaeggið mitt og kaupa mér annað. Tvö í viðbót jafn vel. Mjólkurvörur halda áfram að vera aðalsykuruppspretta heimilanna og nammibarirnir teygja sig inn í grænmetisrekkanna. Lífið gengur sinn vanagang í sykursíkinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Atli Fannar Bjarkason Mest lesið Pólítískt hugrekki Unnur Hrefna Jóhannsdóttir Skoðun Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur Margrét Kristín Blöndal Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt Ian McDonald Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun Vönduð vinnubrögð? Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Að sækja gullið (okkar) grein 2 Þröstur Friðfinnsson Skoðun Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Ráðherrar með reiknivél og leyndarhyggju Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun
Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun
Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun
Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun
Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun