Bridgestone er flagg- skipið hjá Betra gripi 11. apríl 2012 11:00 Arngrímur Þorgrímsson, framkvæmdastjóri Betra grips, ásamt starfsmönnum sínum, Jóhannesi og Jóni. Myndir/Valli
Fyrirtækið Betra grip ehf. rekur heildverslun og hjólbarðaverkstæði að Lágmúla 9. Fyrirtækið er umboðs- og söluaðili fyrir Bridgestone-, Firestone- og Dayton-hjólbarða, sem framkvæmdastjórinn Arngrímur Þorgrímsson segir vera með þeim bestu sem völ er á. Þeir sem ekið hafa á nagladekkjum í vetur þurfa að skipta yfir í sumar- eða heilsársdekk fyrir 15. apríl svo nú er rétti tíminn til að skipta. „Við erum með gott verð á gæðadekkjum og umfelgun," segir Arngrímur. „Það eru fimm ár í júní síðan við tókum við þessu fyrirtæki og fyrir utan áðurnefnd gæðadekk bjóðum við flestar gerðir hjólbarða. Ekki þarf að panta tíma, menn geta komið hingað, fengið ný sumar- eða heilsársdekk og við setjum þau undir bílinn," segir hann enn fremur. „Það vantar ekkert upp á þjónustulundina hjá okkur. Hér er þaulreynt afgreiðslufólk sem veitir upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð undir stjórn Jóhannesar Jónssonar, sem hefur unnið í þessum geira í meira en aldarfjórðung og þekkir hann því eins og lófann á sér. Við flytjum inn hjólbarða fyrir allar gerðir bifreiða, allt frá dekkjum undir fólksbíla og upp í stór og sterk lyftaradekk sem vega hálft tonn," segir Arngrímur.Betra grip er bæði heildsala og hjólbarðaverkstæði í Lágmúla 9.Heildverslunin og verkstæðið eru opin alla virka daga frá klukkan 8 til 18. Verkstæðið er opið á laugardögum frá klukkan 10 til 14. Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 533-3999 eða á heimasíðu fyrirtækisins, slóðin er betragrip.is.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira