Hljómsveit sem eldist með reisn Trausti Júlíusson skrifar 1. ágúst 2012 22:00 Mannakorn.
Tónlist. Mannakorn. Í blómabrekkunni. Sena. Hljómsveitin Mannakorn hefur veið starfandi síðan um miðjan áttunda áratuginn þegar fyrsta plata sveitarinnar, samnefnd henni, leit dagsins ljós. Í blómabrekkunni er níunda plata Mannakorna með nýju efni og sú fyrsta síðan hin ágæta Von kom út fyrir þremur árum. Sem fyrr eru það þeir fóstbræður Pálmi Gunnarsson (röddin) og Magnús Eiríksson (höfundurinn) sem fara fyrir sveitinni, en auk þeirra koma margir valinkunnir tónlistarmenn við sögu, þar á meðal Ellen Kristjánsdóttir sem syngur tvö lög, Stefán Már Magnússon og Eyþór Gunnarsson. Auk textanna hans Magga Eiríks er á plötunni nýtt lag við ljóðið Í kirkjugarði eftir Stein Steinar. Helstu einkenni Mannakorna eru góðar laga- og textasmíðar, vel útsettar og fluttar. Lögin á Í blómabrekkunni eru með þessum klassíska blæ sem Maggi er þekktur fyrir. Útsetningarnar minna líka um margt á fyrri afrek; það er smá kántrí hér og svolítill blús þar. Það er samt einn munur. Mannakorn í dag (hljómsveit að nálgast fertugt) er rólegri og þroskaðri heldur en Mannakorn á Brottför klukkan 8. Það heyrist bæði á tónlist og textum. Það eru engin Göngum yfir brúna eða Braggablús á nýju plötunni. Popparar vilja margir halda endalaust í æskuna (og eru svo sem ekki einir um það), en Mannakorn eldist með reisn. Í blómabrekkunni er fín Mannakornaplata. Lög og textar svíkja ekki, útsetningarnar eru hágæða og tilgerðarlausar og Pálmi syngur jafn vel og áður. Niðurstaða: Fleiri frábær lög og textar frá Magga Eiríks og Pálma Gunn.
Mest lesið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Lífið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lífið Fleiri fréttir Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Sjá meira