Söguskilti um Svavar Guðnason 1. september 2012 00:01 Hulda Rós Sigurðardóttir „Gerir sitt til að halda heiðri frænda síns Svavars Guðnasonar sem listamanns á lofti.“ Mynd/Brynjúlfur Brynjólfsson „
Ég var að vinna á upplýsingamiðstöð hér á Höfn 2003 og varð vör við að margir ferðamenn höfðu áhuga á Svavari Guðnasyni listmálara,“ segir Hornfirðingurinn Hulda Rós Sigurðardóttir sem í byrjun sumars setti upp sögusýninguna „Svavar / náttúran – sagan“ í Listasafni Hornafjarðar. Hana vann hún út frá meistaraverkefni sínu í hagnýtri menningarstjórnun við HÍ. Nú nýlega bætti hún um betur og gekk frá upplýsingaspjöldum um Svavar við einn af fjölförnustu göngustígum bæjarins sem liggur meðfram Sandbakkanum og segir þau augljóslega vekja athygli. „Svavar var náfrændi minn og þess vegna er verkefnið að vissu leyti ákveðið tilfinningamál, að halda heiðri hans sem hornfirskum listamanni á lofti,“ segir Hulda Rós. Aðeins vika er þar til sögusýningunni lýkur að sinni en spjöldin við Sandbakkann lifa áfram. Þar standa meðal annars þessi orð: Annars er Hornafjörður glæsilegasta sveit Íslands – bæði þorpið og umhverfið er eins og boðskapur til málarans! Það er ekki hægt að komast hjá því að verða málari þar ef gáfur, löngun og vilji er fyrir hendi. -gun
Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira