Sex leiðir til að tryggja betri sölu 12. nóvember 2012 15:00 Björn Jóhannsson markaðsstjóri og Jón Trausti Snorrason eigandi Allra átta.
Reynslan sýnir að auðveldara er að selja sumar vörur en aðrar á netinu," segir Jón Trausti Snorrason, eigandi vefsíðufyrirtækisins Allra átta. Hann vekur athygli á að val á samstarfsaðila skipti sköpum þegar stunda á verslun og viðskipti á netinu og mælir með að áhugasamir hringi jafnvel í viðskiptavini hugbúnaðarfyrirtækja til að fá um meðmæli. „Val á netverslunarkerfum skiptir líka miklu máli; hvort það er leitarvélavænt, með tengingu við Póstinn, öruggar síður og greiðslugáttir og tungumálastuðning ef selja á vörunar erlendis," tekur Jón Trausti sem dæmi. Hann segir rekstur netverslunar svipaða því og að reka litla búð við Laugaveg. „Það kostar svipað og er álíka tímafrekt. Því er alltaf æskilegt að verslunarstjóri sé ábyrgur fyrir vörum sem fara í netverslunina, söluferlinu og afhendingu." Að sögn Jóns Trausta eykst netverslun jafnt og þétt í heiminum og verður æ fjölbreyttari. „Það er ekki nóg að koma vefverslun í loftið og halda síðan að viðskiptavinir komi af sjálfu sér til að versla. Vefsíðan þarf að finnast á leitarvélum eins og Google og jafnvel vera kynnt eftir hefðbundnum leiðum, með auglýsingu á prenti eða skjámiðlum. Eigi síðan að finnast í leitarniðurstöðum þarf líka að huga að leitarvélabestun," útskýrir Jón Trausti þegar kemur að markaðssetningu. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands verslaði um helmingur netnotenda vörur eða þjónustu í gegnum vefsíður á árinu 2011. „Þar keyptu heimilisfeður bækur, unga fólkið tónlist og inneign á síma og konurnar föt, skó og fylgihluti. Þótt meirihluti verslunar fari enn fram í hefðbundnum búðum hafa bæði neytendur og kaupmenn uppgötvað augljósa kosti netverslunar," upplýsir Jón Trausti. Samkvæmt Hagstofunni voru algengustu kaupin á netinu 2011 tengd ferðaþjónustu. „Þar á meðal voru farmiðar, gisting og bílaleigubílar en fast á eftir kom fjarskiptaþjónusta, bækur og hugbúnaður, síðan föt og handverk og hefur sú vara tekið augljósan kipp sem söluvarningur á netinu," segir Jón Trausti. Á heimsvísu er áætlað að netverslun muni meira en tvöfaldast milli áranna 2012 og 2013 og að sala á netinu fari yfir 1,25 billjónir Bandaríkjadala í lok árs 2013. Allra átta er í Bolholti 4. Sími 588 8885. Veffang: www.8.is. Nánari upplýsingar má finna hér.Leiðirnar sex1.Vinsælustu vörurnar á forsíðu (út frá mælingum).2.Einfalt kaupferli (hraðkaup án innskráningar).3.Frí heimsending (um allt land).4.Skilatrygging (auðvelt að fá að skipta eða skila vöru).5.Betra verð á netinu (það á að vera hagkvæmara að versla á netinu).6.Vörur í boði sem fást aðeins á netinu (einstakar og í takmörkuðu magni).
Mest lesið Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Fyrsti vinnudagurinn eftir frí og níu góð ráð Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Góð ráð við slæmum þynnkudegi í vinnunni Atvinnulíf Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Fleiri fréttir Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira