Fifties-jól 5. desember 2012 00:00 Hvað er jólalegra? Elizabeth Taylor í jólakjól árið 1955.
Kvenlegar línur fara aldrei úr tísku og því er praktískt að fjárfesta í fifties-jólakjól. Tískan fer í hringi. Það er alkunna. Sumt skýtur þó upp kollinum oftar en annað og er fifties-tískan, eða tíska sjötta áratugarins, þar á meðal. Væntanlega eru það hinar kvenlegu línur sem heilla. Á þessum tíma náðu pilsin niður á kálfa og voru annað hvort víð eða níðþröng. Efri hlutinn var aðsniðinn og mittið sérstaklega áberandi. Áhersla var á hin kvenlegu form; brjóst, mitti og mjaðmir, en þau voru mótuð með hjálp lífstykkja og púða. Hárið var yfirleitt stuttklippt og féll í mjúkum bylgjum. Kvenlegir hanskar, hattar, þröngir skór og handtöskur fylgdu með. Kvöldkjólarnir voru oftar en ekki með enn víðari pilsum, flegnu hálsmáli og berum öxlum. Kjólar sem þessir eru löngu orðnir að klassík. Klassíkin ræður ríkjum um jól og því ekki úr vegi að fjárfesta í fifties-jólakjól. Hann gæti gengið ár eftir ár eftir ár.- ve
Jólafréttir Mest lesið Rambaði á góðan fisk Jól Býr til ævintýraheim í stofunni Jól Spenningurinn að ná hámarkinu Jól Halda í hefðina með öðrum hráefnum Jól Marinerað sjávarréttakonfekt Jól Fagurkeri með fastmótaðar hefðir Jól Ljóðið um aðventukertin fjögur Jólin Gleymir að kaupa jólatré Jól Jólaneglurnar verða vínrauðar Jól Endurspegla samskiptin Jólin