Nýr Suzuki Grand Vitara 18. janúar 2013 09:00 Suzuki Grand Vitara í sínu rétta umhverfi
Fyrsti bíllinn sem boðinn er með Garmin leiðsögukerfi sem staðalbúnað. Suzuki Grand Vitara hefur lengi verið einn af eftirsóttari jeppunum í sínum stærðarflokki á Íslandi og af honum seldust 140 bílar í fyrra. Um helgina verður hann frumsýndur í nýrri gerð hjá Suzuki bílum í Skeifunni. Suzuki Grand Vitara hefur haft þá sérstöðu frá upphafi að vera með sítengdu aldrifi ásamt læsingu á millikassa og lágu drifi. Hér er því um að ræða jeppa sem hentar íslenskum aðstæðum vel. Undir yfirbyggingunni er sterkbyggð grind, aflmikil vél og gott fjórhjóladrif með háu og lágu sídrifi með læsingu á milli fram og afturhjóla. Nýja uppfærslan er með talsvert breyttum framenda. Grand Vitara er boðinn með 1,9 lítra, 130 hestafla dísilvél og beinskiptingu og 2,4 lítra bensínvél, 164 hestafla, beinskiptur og sjálfskiptur. Heldur hefur bæst í staðalbúnað bílsins frá fyrri gerð og meðal búnaðar sem honum fylgir má nefna lykillausa ræsingu og hann er fyrsti bíllinn sem er boðinn með Garmin leiðsögukerfi sem staðalbúnað hér á landi. Grand Vitara verður frumsýndur hjá Suzuki bílum í Skeifunni 17 á laugardag og sunnudag milli kl. 12-16. Auk Grand Vitara verður litli jeppinn Jimny sýndur með breyttu útliti.
Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Innlent Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Innlent Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Erlent