Mesta sala á einu ári í sögu Porsche 25. janúar 2013 13:15
Cayenne jeppinn telur ríflega helming af heildarsölu Porsche. Fleiri Porsche sportbílar seldust á árinu 2012 en nokkru sinni fyrr í sögu þýska framleiðandans. Alls voru afhentir 141.075 Porsche sportbílar sem er 18,7% aukning frá árinu 2011. Þetta þykir umtalsverður árangur í ljósi efnahagskreppunnar. Sala á Porsche hefur aukist á hverju ári síðastliðin þrjú ár. Á þessu tímabili hefur salan aukist um 83,9%. „Árið 2012 var það árangursríkasta í sögu fyrirtækisins," sagði Matthias Müller, forstjóri og aðalframkvæmdastjóri Porsche á bílasýningunni í Detroit sem nú stendur yfir. „Lykilatriði í velgengni okkar er samheldinn og traustur hópur starfsmanna. Við höfum öll spil á hendi til að árið 2013 verði Porsche einnig gæfuríkt. Porsche hyggur á mikla markaðssetningu á þessu ári með nýjum tvinnbílum, eins og t.d. 918 Spyder og sportjeppanum Macan. Söluaukning Porsche var yfir 10% á öllum markaðssvæðum en mest var hún í Asíu og Kyrrahafslöndunum þar sem afhentir voru 50.376 nýir bílar sem er 23,6% aukning. Í Evrópu jókst salan um 13,5%. Í Bandaríkjunum jókst sala á Porsche um 20,7%. Á heimamarkaði, í Þýskalandi, naut Porsche einnig mikillar velgengni þar sem vinsældir 911, Cayenne, Panamera, Boxster og Cayman eru miklar. Þar nam aukningin tæpum 17%. Porsche 911 Carrera var sá bíll sem naut mestu söluaukningar hjá Porsche á síðasta ári. Aukningin nam alls 31,4%. Það er hins vegar Cayenne sportjeppinn sem er söluhæsta einstaka gerðin. Alls seldust 74.763 bílar á síðasta ári sem er 24,8% aukning. Þar af seldust 19.000 eintök af Cayenne S, Cayenne GTS og Cayenne Turbo og þar með heldur Porsche stöðu sinni sem söluhæsti bíllinn í flokki aflmestu sportjeppanna.
Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent „Við erum bara að mótmæla“ Innlent Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Erlent Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Erlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent