Komið að kaflaskilum segir Þröstur Garðar Örn Úlfarsson skrifar 8. febrúar 2013 08:15 Þröstur Elliðason með lax úr Steinboga í Jökulsá á Dal. Mynd / Strengir.
Þröstur Elliðason í Strengjum spáir verðlækkun á stangveiðileyfum samfara samdrætti í veiði og minnkandi eftirspurn. Staðan sé erfið. "Almennt er salan minni í heild sinni," segir Þröstur Elliðason eigandi Veiðiþjónustunnar Strengja um söluhorfurnar fyrir komandi veiðitímabil. "Ég sé fram á samdrátt í Breiðdalsá og Hrútafjarðará, en það verður svipað í Minnivallalæk og verið hefur undanfarin ár sýnist mér," segir Þröstur sem sér hins vegar góða þróun í sölunni á Jöklusvæðinu við Héraðsflóa "Jökla er með aukningu í eftirspurn enda með hóflegra verð og veiðin er á uppleið þar," segir Þröstur og minnir á nýja fiskistigann við Steinboga í Jöklu. "Lax ætti að geta gengið upp Steinbogann hindrunarlaust næsta ár eins og reynslan sýndi í ágúst eftir opnun hans 1 ágúst." Aðspurður um þróunina að undanförnu í útboðsmálum og verðþróun stangveiðileyfa segir Þröstur að staðan í heild sinni sé erfið. "Samningar eru fastir til nokkurra ára til landeigenda og yfirleitt með verðtryggingu til hækkunar á sama tíma og veiðileyfin, ef eitthvað er, eru að lækka til kúnnans. Kostnaður vegna reksturs veiðihúsa hækkar líka án þess að hægt sé að hækka gisti og/eða fæðisgjald á milli ára," segir Þröstur sem kveðst telja komið að kaflaskilum: "Það munu sjást lækkanir á veiðileyfaverðum og árleigum á næstu árum nema það smelli hreinlega í nýja metveiði í sumar - sem ég efa," segir Þröstur. Hann búist þó ekki við að það sjáist jafn slappar tölur og sumarið 2012 heldur verði veiðin upp á við næsta sumar, að minnsta kosti í smálaxi. "Nema ástand sjávar sé orðið gjörbreytt til hins verra af einhverjum ástæðum, en við sjáum til," segir veiðileyfasalinn og fiskifræðingurinn Þröstur Elliðason.
Stangveiði Mest lesið Urriðafoss að detta í 400 laxa Veiði Laxinn mættur í Ytri-Rangá? Veiði Heilræðabók Fluguveiðimannsins Veiði Mest tveggja ára laxar af Jöklusvæðinu Veiði Munið eftir vestunum Veiði Hvað á taumurinn að vera langur? Veiði Tveir laxar á land við opnun í Hrútafjarðará Veiði Hljóðlát aðkoma besta byrjunin Veiði Sogið vill ala upp stórar bleikjur Veiði Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði