Solo verður sóló 7. febrúar 2013 09:57 Harrison Ford var 35 ára þegar fyrsta Star Wars-myndin kom út.
Enn berast fregnir úr Star Wars-heimum. Auk nýju myndarinnar, sem stefnt er á að frumsýna árið 2015, stendur til að gera sérstakar myndir um þá Han Solo og Boba Fett. Það var hálffertugur Harrison Ford sem lék Solo í fyrstu myndinni, og því þykir ólíklegt að hann endurtaki hlutverkið. Sérstaklega í ljósi þess að sólómynd Solo á að gerast á undan upprunalegu trílógíunni. Því verður að öllum líkindum nýr leikari fenginn til verksins. Boba Fett-myndin er auðveldari í framkvæmd þar sem þessi vinsæla aukapersóna er alltaf með hjálm á hausnum, en limaburðirnir verða þó að vera í lagi. Eins og frægt er orðið var það Disney-samsteypan sem keypti Lucasfilm á dögunum, og hefur það hleypt nýju lífi í þennan gamla myndaflokk.
Menning Mest lesið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Tónlist Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira