Orkusparandi lausnir 18. febrúar 2013 10:00 Emil Þór Kristjánsson orkutæknifræðingur og Friðmar M. Friðmarsson framkvæmdastjóri með myndarlegan mótorloka frá Belimo, einum stærsta framleiðanda mótorloka heims. Mynd/GVA
Gott loft skiptir sköpum fyrir heilbrigði húsa og manna. Í Hitatækni býr áratuga reynsla við stjórn- og stýribúnað loftræsti- og hitakerfa. "Metnaður okkar felst í að geta boðið nánast allt sem viðkemur hita-, kæli- og loftræstikerfum,“ segir Friðmar M. Friðmarsson, framkvæmdastjóri Hitatækni. Fyrirtækið var stofnað 1986 og er leiðandi á sínu sviði. "Hitatækni selur meðal annars lausnir og búnað þar sem orkusparandi aðgerðir eru hafðar að leiðarljósi. Orka, eða vatn og rafmagn, er í dag orðinn dýr þáttur í rekstri húseigna. Hægt að ná verulegum sparnaði með réttum stjórn- og stýribúnaði og þá um miklar upphæðir að ræða. Á þó nokkrum stöðum hafa verið sett upp hússtjórnarkerfi frá Alerton en með því er hægt að stjórna öllu sem viðkemur hita, raka og snjóbræðslukerfum ásamt allri ljósastýringu og orkunotkun hússins. Þessu kerfi er hægt að tengjast gegnum internetið,“ útskýrir Friðmar. Hann segir gott loftflæði skipta sköpum fyrir heilbrigði húsa og manna. "Hitatækni selur eingöngu viðurkenndan búnað frá leiðandi fyrirtækjum í þessum geira, svo sem frá Belimo, Alerton, Trox, Regin, Thermokon, Hygromatik, IVprodukt, Airwell, Flowair, Sodega og fleirum.“ Friðmar segir mikla aukningu hafa verið í notkun kælitækja á Íslandi undanfarin ár. "Við ¬seljum mikið af kælitækjum í skrifstofurými og atvinnuhúsnæði.“ Hjá Hitatækni starfa fimm starfsmenn sem búa yfir gífurlegri þekkingu á sínu sviði. "Fyrirtækið hefur safnað víðtækri reynslu á rúmum aldarfjórðungi og selur því ekki eingöngu búnað heldur traustar og sannreyndar lausnir. Uppsöfnuð reynsla gerir okkur að einu fremsta sérfræðifyrirtæki á sviði loftræsti- og hitakerfa og við sjáum auk þess um eftirlit og þjónustu með tilliti til orkusparnaðar og rekstrarhagkvæmni.“ Hitatækni er á Langholtsvegi 109. Sjá nánar á hitataekni.is.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira