Razia rekinn til að koma Bianchi að Birgir Þór Harðarson skrifar 1. mars 2013 22:37 Bianchi mun aka í Formúlu 1 í sumar eftir allt saman.
Luiz Razia hefur verið sagt upp sem keppnisökuþór Marussia-liðsins í Formúlu 1. Aðeins mánuður er síðan hann var kynntur sem annar ökuþór þerra við hlið Bretans unga Max Chilton. Jules Bianchi mun taka sæti Razia keppnistímabilið 2013. "Ég er í sjokki," sagði Razia í fyrsta viðtalinu eftir að hafa fengið fréttirnar en aðal styrktaraðili hans stóð ekki í skilum við Marussia-liðið. Razia var því sagt upp og Marussia ákvað að tryggja sér þjónustu Bianchi sem fékk ekki keppnissæti hjá Force India eftir slag um það við Adrian Sutil. Razia segist ekki vera reiður liðinu en að styrktaraðilinn hafi valdið sér vonbrigðum. "Ég gerði allt rétt en þessar aðstæður urðu til þess að svona fór." Bianchi fær ekki mikinn tíma til að koma sér fyrir í Marussia-bílnum því hann þarf að aka heilan æfingadag með liðinu á morgun, laugardag. Marussia hafði einnig samband við indverska ökuþórinn Narain Karthikeyan þegar ljóst var að Razia gæti ekki ekið í sumar en valdi Bianchi frekar.
Formúla Mest lesið United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Fótbolti Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Stjarnan - KR | Barist um bikarinn Körfubolti Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira