Smurolíumælir fyrir almenning Finnur Thorlacius skrifar 18. mars 2013 10:15
Gefur svar við ástandi smurolíunnar á innan við mínútu. Bíleigendur hafa hingað til verið í mikilli óvissu um hvenær rétt sé að skipta um smurolíu á bílum sínum. Sumir taka enga áhættu og láta smyrja bílinn á 5.000 kílómetra fresti, en það kostar líka skildinginn og var ef til vill engin þörf á. Því ættu margir að fagna nýjum smurolíumæli sem kostar aðeins 40 dollara og gefur svar við ástandi olíunnar á innan við mínútu. Mælirinn er örlítið minni en iPhone sími og léttur eftir því. Niðustöðurnar birtast á kvarðanum 1-10 sem segir til um ástand olíunnar. Setja þarf örfáa olíudropa á hringlaga miðju mælisins og bíða niðurstaðna. Ef mælirinn blikkar rauðu ljósi er olían orðin svo slæm að næsta bílferð verður að vera á smurolíustöð. Fyrirtækið sem framleiðir mælinn heitir Lubricheck og hefur þegar hafið sölu á honum á almennum markaði. Hægt er að festa kaup á mælinum á heimasíðu fyrirtækisins, lubricheck.com.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent