Troða bílana og fara Finnur Thorlacius skrifar 11. apríl 2013 08:45 Tæplega má koma fyrir fleiri kössum í og á þessum bíl
Flýja með yfirhlaðna bíla sína af framleiðsluvörum frá Kaesong iðnaðarsvæðinu. Þeim lá mikið á S-Kóreubúunum sem hafa yfirgefið sameiginlega iðnaðarsvæði Norður- og Suður-Kóreu í Kaesong enda hótanirnar úr norði ekki af skemmtilegra taginu. Þeir fóru þó margir ekki tómhentir frá þessu framleiðslugnægtarbúri heldur tróðu margir bíla sína af iðnaðarframleiðslu þeirri sem þar varð til. Þessar myndir sýna það glögglega og efast má um að meiri farangur hafi mátt flytja í bílunum og eru þeir ansi signir fyrir vikið. Myndirnar benda einnig til þess að þessir starfsmenn gera einfaldlega ekki ráð fyrir að þeir eigi afturkvæmt á þennan vinnustað sinn og spurning hvort hann verði nokkuð til innan tíðar. Þá er kannski bara best að hrifsa sem mest með sér.Ekki er þessi minna hlaðinn
Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent