Eyesland áfram með lága verðið 18. apríl 2013 06:00 Hjá Eyesland fást allt að þrenn gleraugu á verði einna miðað við það verð sem almennt tíðkast á gleraugum. Mynd/GVA
Gleraugnaverslunin Eyesland á fimmtu hæð Glæsibæjar selur gæðasólgleraugu, með eða án sjónglerja. Eyesland er með gleraugu fyrir öll tækifæri fyrir aðeins brot af því verði sem almennt þekkist. Eyesland er án efa eitt best geymda leyndarmál borgarinnar þegar kemur að góðum kaupum á sólgleraugum og öðrum sjóntækjum. „Það færist stöðugt í aukana að fólk fái sér sólgleraugu með styrk. Við erum með mikið úrval sólgleraugna með og án styrks auk gleraugna og linsa á góðu verði,“ segir Helga Kristinsdóttir, sjóntækjafræðingur hjá Eyesland.Þrenn gleraugu á verði einna Eftirspurnin eftir mismunandi gleraugum til notkunar við hin ýmsu tækifæri fer vaxandi. „Krafan er einfaldlega sú að fólk vill eiga gleraugu við hvert tækifæri. Dæmi um þetta er einstaklingur sem vill til dæmis eiga hlaupagleraugu með dökku sjóngleri og njóta þannig útsýnisins á meðan hann hleypur. Hann vill líka eiga hversdagssjóngleraugu og svo flott tískugleraugu með dökku sjóngleri fyrir akstur í sól eða við lestur blaða á sólpallinum. Alla jafna myndi kostnaður fara út yfir öll mörk. Hjá Eyesland fást þessi gleraugu á bilinu 25-30 þúsund stykkið.“ Þar fást því allt að þrenn gleraugu á verði einna miðað við það verð sem almennt tíðkast á gleraugum.Allar gerðir gleraugna Gleraugnaumgjarðir í mismunandi útfærslum auk sólgleraugna eru fólki nauðsynleg í nútímasamfélagi við hinar ýmsu aðstæður. „Við erum með polarized veiðigleraugu, hjóla- og hlaupagleraugu, jökla-, útivistar- og skíðagleraugu ásamt fleiri gerðum sem henta ýmsum aðstæðum. Þá vorum við að fá sendingu af Karen Millen og Ray Ban-sólgleraugum. Einnig er lítið mál fyrir okkur að útbúa dökk sjóngler í þær gleraugnaumgjarðir sem boðið er upp á hér í versluninni.“Sjónmælingar Í Eyesland er bæði hægt að panta tíma í sjónmælingu og líta við hvenær sem er. „Skynsamlegra er að láta athuga sjónina fyrst, bæði til að sjá hvað sé hægt að gera fyrir viðkomandi og til að veita ráðleggingar um hvaða gleraugu henti best,“ segir Helga. Opnunartími Eyesland er frá 8.30 til 17. Á heimasíðunni eyesland.is má sjá hluta af úrvali verslunarinnar og það góða verð sem boðið er upp á.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira