Hvorki glæpasaga né ástarsaga og þó Friðrika Benónýsdóttir skrifar 13. október 2013 16:00 Árni Þórarinsson
Glæpurinn: ástarsaga er ný bók Árna Þórarinssonar sem kemur út á þriðjudag. Þrátt fyrir nafnið segir Árni söguna falla undir hvoruga skilgreininguna. „Þetta er saga sem fjallar um afdrifaríkan sólarhring í lífi reykvískrar fjölskyldu í samtímanum, en teygir anga sína aftur til fortíðar,“ svarar Árni véfréttarlegur þegar spurt er um efni nýju bókarinnar. „Það er þarna glæpur, kannski fleiri en einn, og það er þarna ást en sagan fellur þó hvorki inn í hið hefðbundna form glæpasagna né ástarsagna.“ Og Einar vinur okkar blaðamaður er fjarri góðu gamni? „Já, það er nú þannig þegar maður er að skrifa að hugmyndirnar koma til manns óumbeðnar og þessi hugmynd féll hvorki að formi glæpasögunnar né tengdist hún Einari á nokkurn hátt. Hann er þó alls ekki dáinn, bíður þolinmóður á hliðarlínunni og á eflaust eftir að birtast aftur.“
Menning Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Hvað veistu um... Pólland? Lífið Fleiri fréttir Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira