Í desember eru 9 mánuðir í ágúst Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 5. desember 2013 13:00 „Ég hef verið uppgötvaður á heimasíðunni minni. Þannig uppsker maður á endanum,“ segir Georg Óskar sem opnar sýningu á laugardag. „
Ég verð með málverk sem ég hef unnið á þessu ári ásamt 30 teikningum,“ segir Georg Óskar myndlistarmaður um efni sýningar sem hann opnar 7. desember í sal Myndlistarfélagsins á Akureyri að Kaupvangsstræti 10. Þetta er sjöunda einkasýning Georgs Óskars og eftir áramót verður hann með verk sín í Galleríi Vegg á Forréttabarnum við Tryggvagötu í Reykjavík. Hann kveðst líka umbeðinn hafa sent verk á safn í Bandaríkjunum, hvers stjórnandi sækist eftir verkum áhugaverðra myndlistarmanna. Auk þess að hafa komið fram í erlendum netmiðli nýlega mun á næstu dögum birtast viðtal við hann í tímaritinu Tribe magazine. Skyldi hann vera málari að atvinnu? „Það væri óskandi að sú væri staðan. Akkúrat núna er ég reyndar að sinna myndlistinni aðallega af því að sýningin er fram undan en ég er ekki að fleyta sjálfum mér og mínu batteríi á málverkum, frekar en margir ungir myndlistarmenn. En ég hef verið uppgötvaður á heimasíðunni minni. Þannig uppsker maður á endanum,“ segir hann bjartsýnn. Titill sýningarinnar: 9 mánuðir í ágúst. Hvaðan kemur hann? „Mig langaði að hafa hann persónulegan því verkin eru unnin út frá skynjunum og minningum. Kærastan byrjar að hlakka til jólanna í maí. Hennar uppáhaldsmánuður er desember en minn er ágúst og mér fannst athyglisvert að í desember eru 9 mánuðir í ágúst!
Menning Mest lesið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Lífið Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Lífið Fleiri fréttir Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira