Utan vallar: Hafði tröllatrú á sjálfum sér Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. desember 2013 00:01 Hannes í leik með KR. „
Ég er alltaf að horfa upp á við og það þarf að vera einhver rúsína í pylsuendanum sem drífur mann áfram í aukaæfingunum en ég æfi mikið aukalega. Ég þarf að horfa til einhvers markmiðs til þess að nenna því og næst á dagskrá er að komast í landsliðið og fara út,“ sagði Hannes Þór Halldórsson í viðtali við Fréttablaðið sumarið 2008. Hannes Þór varði þá mark Framara og hafði gert það af stakri prýði. Árið áður hafði hann verið gagnrýndur töluvert fyrir frammistöðu sína. „Ég kom inn í mótið, hélt að ég væri súpermann og ætlaði að sigra heiminn. Svo var ég sleginn niður á jörðina og þurfti að stokka spilin upp á nýtt. Ég þurfti að vinna í sjálfum mér og það er að skila sér núna,“ sagði Hannes. Markvörðurinn hefur upplifað hæðir og lægðir á ferli sínum auk þess að vera gagnrýndur fyrir ýmislegt í leik sínum. Spyrnurnar voru mikill veikleiki en aukaæfingarnar hafa svo sannarlega skilað sér. Hreyfingarnar eru kannski ekki þær mýkstu en það kemur sjaldnast að sök. Hann er traustur, maður stóru augnablikanna eins og vítaskyttur landsins þekkja alltof vel og vinsæll liðsfélagi. Sumarið 2004 sat hann á bekknum hjá Leikni í 2. deild, spilaði með Aftureldingu í sömu deild árið eftir og með Stjörnunni í 1. deild 2006. Á þeim tíma hefðu fáir veðjað á að Hannes ætti innan nokkurra ára eftir að verja búrið í bestu undankeppni karlalandsliðsins. Líklega höfðu sömuleiðis fáir trú á því sumarið 2008. Öðru máli gegndi um Hannes. „Ég tel mig eiga möguleika á landsliðssæti og er að vonast til þess að fá tækifærið. Ég held að ég eigi alveg eins heima þar eins og þessir menn sem eru þarna núna. Mér fyndist það ekkert fáránlegt val hjá landsliðsþjálfaranum,“ sagði Hannes í fyrrnefndu viðtali. Einn af styrkleikum Hannesar hefur verið sá að deila markmiðum sínum með öðrum. Hann ætlaði sér að spila í efstu deild, hann ætlaði sér í landsliðið og ætlaði sér í atvinnumennsku. Hvort öll markmiðin hafi náðst nákvæmlega á þeim tíma sem hann setti sér að ná þeim er ekki aðalatriði. Í dag hefur hann náð þeim öllum og næst á dagskrá er að stimpla sig inn á erlendri grundu. Ólíkt fjölmörgum knattspyrnuköppum er Hannes ekki háður fótboltanum til að hafa í sig og á. Ást leikstjórans dáða á íþrótt sinni og metnaður hefur fleytt honum langt og engin leið að spá um framhaldið. Enginn skyldi reikna með því að Sandnes verði endastöð markvarðarins 29 ára.
Pepsi Max-deild karla Pistillinn Tengdar fréttir Pistillinn: Til hvers að senda íslenska sundfólkið á Ólympíuleika? Fremsta sundfólk landsins lauk fyrir helgi þátttöku á Ólympíuleikunum í London. Engin íslenskur keppandi náði í úrslit og aðeins voru sett tvö Íslandsmet á leikunum. Vonbrigði að mati margra. 8. ágúst 2012 08:00 Pistill: Þess vegna eru þeir strákarnir okkar Þegar fólk nær árangri og kemst fyrir vikið í kastljós fjölmiðla er oft einblínt á sigur einstaklingsins yfir sjálfum sér eða öðrum. Það er góð saga, en einungis hálf sögð. 11. október 2013 10:39 Pistill: Óskiljanlegar ákvarðanir Ólíklegt er að hornamaðurinn Þórir Ólafsson hafi jafnað sig á því að hafa ekki verið valinn í landsliðshóp Íslands í handbolta fyrir Ólympíuleikana í handbolta. Skyldi engan undra. 28. júlí 2012 17:00 Pistillinn: Fullorðni óvitinn „Fergie, semdu við hann,“ hljómaði ósjaldan á Old Trafford á árunum 2007-2009. Stuðningsmenn Manchester United skildu ekki hvers vegna Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri félagsins, vildi ekki gera langtímasamning við Carlos Tevez. 1. október 2011 06:00 Pistillinn: Vítaspyrnukeppni – algjör heppni? "Þegar leikir fara í vítaspyrnukeppni er um happdrætti að ræða. Heppnin var einfaldlega með okkur í kvöld," sagði knattspyrnustjórinn Roberto Di Matteo að loknum dramatískum sigri Chelsea á Bayern München í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardag. 22. maí 2012 07:00 Pistill: Endalausar dýfur „Þetta er bara hluti af leiknum.“ „Maður gerir allt til þess að vinna.“ Hversu oft hefur maður heyrt afsakanir sem þessar fyrir því að hraustir menn hendi sér í gólfið við lítið sem ekkert tilefni. Allt er gert til þess að styrkja stöðu liðsins sem gæti, séu tilburðirnir nógu sannfærandi, leikið manni fleiri eða þurfa ekki að glíma við lykilmann úr röðum andstæðinganna. 27. mars 2013 13:45 Utan vallar: Mætum og styðjum Flestir muna væntanlega hvar þeir voru föstudagskvöldið 6. september. Þeir sömu munu muna það eftir fimm ár, tíu ár og líklega allt þar til þeir yfirgefa þennan heim. 9. september 2013 08:00 Pistill: Gylfi og Chicharito "Gylfi hefði ekki átt að velja peninga fram yfir spilatíma,“ er fullyrðing sem ég hef heyrt frá knattspyrnuáhugamönnum undanfarnar vikur og mánuði. 5. febrúar 2013 10:34 Utan vallar: Korter í Kalmar Lítil ástæða virðist til bjartsýni fyrir Evrópumót kvennalandsliða í knattspyrnu í sumar. Síðan stelpurnar okkar slógu út Úkraínu í tveimur umspilsleikjum um sæti í lokakeppninni í Svíþjóð hefur allt gengið á afturfótunum. 4. júní 2013 06:30 Utan vallar: Góðir hlutir gerast hægt Stjórn Knattspyrnusambands Íslands veltir þessa dagana fyrir sér næstu skrefum í leit sinni að nýjum landsliðsþjálfara kvenna í knattspyrnu. 28. ágúst 2013 08:00 Utan vallar: Bikarmeistararnir úr leik við fyrstu hindrun Bikarmeistarar Manchester City taka á móti grönnum sínum í United í hádeginu á sunnudag í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Eftir 1-6 niðurlæginguna á Old Trafford fyrr í vetur eru einhverjir farnir að líta á United sem litla liðið í Manchester. 7. janúar 2012 08:00 Pistillinn: Gefðu boltann! Einspilari er orð sem er nánast eingöngu notað í yngri flokkum í knattspyrnu. Krakkar eða táningar sem kjósa ítrekað að fara sínar eigin leiðir frekar en að senda á samherja. Hvers vegna? Þeir vita að oftar en ekki virkar það. 8. október 2011 07:00 Mest lesið Opnaði sig um skilnaðinn og erfiða tíma Sport Trump fær blóðugan bardaga í Hvíta húsinu í afmælisgjöf Sport Arnar Gunnlaugs segir gagnrýnendur Liverpool gleyma mannlega þættinum Enski boltinn Bjarni Guðjóns tók einn KR-ing sérstaklega fyrir Íslenski boltinn Niðurbrotin Eygló keppir ekki á HM Sport „Hættiði að horfa á klám og hættiði að runka ykkur“ Sport UEFA grætur niðurstöðuna en gefur grænt ljós Fótbolti Gleðin í klefanum hjá nýju Íslandsmeisturunum Íslenski boltinn „Þá er búið að yfirtaka sál félagsins“ Enski boltinn Stólarnir komust ekki heim og æfa í Grindavík fyrir stórleikinn Sport Fleiri fréttir Valur - Stjarnan | Jöfn að stigum og spila upp á stoltið „Þetta er enginn flugeldasýningar Íslandsmeistaratitill“ Ekki gerst á Skaganum síðan Garðar átti markamánuð lífs síns Bjarni Guðjóns tók einn KR-ing sérstaklega fyrir Svona tryggðu Víkingar titilinn og öll hin mörkin úr Bestu í gær Gleðin í klefanum hjá nýju Íslandsmeisturunum „Þá fann ég á liðinu að það yrði ekki snúið við“ Sjáðu fögnuð Víkinga þegar Íslandsmeistaratitillinn var tryggður Gylfi Sigurðsson: Mikill léttir að tryggja fyrsta titilinn „Maður er orðinn Íslandsmeistari í sínu fyrsta giggi“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-1 | Evrópuvonir Blika lifa Uppgjörið: Víkingur - FH 2-0 | Víkingur er Íslandsmeistari Uppgjörið: KA - Vestri 1-1 | Sæst á jafnan hlut fyrir norðan „Ákveðin blæðing stoppuð í dag“ Lofar Heimi rauðvínsflösku úr efstu hillu „Hef ekki verið nægilega góður í sumar“ Sendir sófasérfræðingum tóninn: „Líklega eini þjálfarinn í heiminum“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 3-2 | Fundinn: Jónatan Ingi Uppgjörið: FHL - Þór/KA 2-3 | Hasar í lokin Markasúpa í Grafarholtinu „Sérstaklega sáttur eftir ranglætið sem við vorum beittir“ Sjáðu lygilegar lokamínútur á Meistaravöllum „Næg er neikvæðnin í kringum okkur“ Uppgjörið: KR - Afturelding 2-2 | Ótrúleg dramatík á Meistaravöllum Uppgjörið: ÍBV - ÍA 0-2 | Fjarlægjast fallsvæðið með enn einum sigrinum Sjáðu mörkin sem tryggðu Blikum titilinn Fékk yfir sig vatnsgusu: „Fagna þessu á Gus Gus á morgun“ „Verðum nú að fagna þessu aðeins“ Uppgjörið: Breiðablik 3-2 Víkingur | Breiðablik Íslandsmeistari 2025 Frítt inn í kvöld þegar Blikakonur geta orðið Íslandsmeistarar Sjá meira
Pistillinn: Til hvers að senda íslenska sundfólkið á Ólympíuleika? Fremsta sundfólk landsins lauk fyrir helgi þátttöku á Ólympíuleikunum í London. Engin íslenskur keppandi náði í úrslit og aðeins voru sett tvö Íslandsmet á leikunum. Vonbrigði að mati margra. 8. ágúst 2012 08:00
Pistill: Þess vegna eru þeir strákarnir okkar Þegar fólk nær árangri og kemst fyrir vikið í kastljós fjölmiðla er oft einblínt á sigur einstaklingsins yfir sjálfum sér eða öðrum. Það er góð saga, en einungis hálf sögð. 11. október 2013 10:39
Pistill: Óskiljanlegar ákvarðanir Ólíklegt er að hornamaðurinn Þórir Ólafsson hafi jafnað sig á því að hafa ekki verið valinn í landsliðshóp Íslands í handbolta fyrir Ólympíuleikana í handbolta. Skyldi engan undra. 28. júlí 2012 17:00
Pistillinn: Fullorðni óvitinn „Fergie, semdu við hann,“ hljómaði ósjaldan á Old Trafford á árunum 2007-2009. Stuðningsmenn Manchester United skildu ekki hvers vegna Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri félagsins, vildi ekki gera langtímasamning við Carlos Tevez. 1. október 2011 06:00
Pistillinn: Vítaspyrnukeppni – algjör heppni? "Þegar leikir fara í vítaspyrnukeppni er um happdrætti að ræða. Heppnin var einfaldlega með okkur í kvöld," sagði knattspyrnustjórinn Roberto Di Matteo að loknum dramatískum sigri Chelsea á Bayern München í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardag. 22. maí 2012 07:00
Pistill: Endalausar dýfur „Þetta er bara hluti af leiknum.“ „Maður gerir allt til þess að vinna.“ Hversu oft hefur maður heyrt afsakanir sem þessar fyrir því að hraustir menn hendi sér í gólfið við lítið sem ekkert tilefni. Allt er gert til þess að styrkja stöðu liðsins sem gæti, séu tilburðirnir nógu sannfærandi, leikið manni fleiri eða þurfa ekki að glíma við lykilmann úr röðum andstæðinganna. 27. mars 2013 13:45
Utan vallar: Mætum og styðjum Flestir muna væntanlega hvar þeir voru föstudagskvöldið 6. september. Þeir sömu munu muna það eftir fimm ár, tíu ár og líklega allt þar til þeir yfirgefa þennan heim. 9. september 2013 08:00
Pistill: Gylfi og Chicharito "Gylfi hefði ekki átt að velja peninga fram yfir spilatíma,“ er fullyrðing sem ég hef heyrt frá knattspyrnuáhugamönnum undanfarnar vikur og mánuði. 5. febrúar 2013 10:34
Utan vallar: Korter í Kalmar Lítil ástæða virðist til bjartsýni fyrir Evrópumót kvennalandsliða í knattspyrnu í sumar. Síðan stelpurnar okkar slógu út Úkraínu í tveimur umspilsleikjum um sæti í lokakeppninni í Svíþjóð hefur allt gengið á afturfótunum. 4. júní 2013 06:30
Utan vallar: Góðir hlutir gerast hægt Stjórn Knattspyrnusambands Íslands veltir þessa dagana fyrir sér næstu skrefum í leit sinni að nýjum landsliðsþjálfara kvenna í knattspyrnu. 28. ágúst 2013 08:00
Utan vallar: Bikarmeistararnir úr leik við fyrstu hindrun Bikarmeistarar Manchester City taka á móti grönnum sínum í United í hádeginu á sunnudag í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Eftir 1-6 niðurlæginguna á Old Trafford fyrr í vetur eru einhverjir farnir að líta á United sem litla liðið í Manchester. 7. janúar 2012 08:00
Pistillinn: Gefðu boltann! Einspilari er orð sem er nánast eingöngu notað í yngri flokkum í knattspyrnu. Krakkar eða táningar sem kjósa ítrekað að fara sínar eigin leiðir frekar en að senda á samherja. Hvers vegna? Þeir vita að oftar en ekki virkar það. 8. október 2011 07:00