Trommari Slipknot segist ekki hafa hætt í hljómsveitinni Orri Freyr Rúnarsson skrifar 2. janúar 2014 10:50 Segist ekki hafa hætt sjálfviljugur
Joey Jordison, trommari og stofnmeðlimur bandarísku hljómsveitarinnar Slipknot, neitar þeim fregnum að hann hafi hætt í hljómsveitinni. En það var í síðasta mánuði sem tilkynnt var að trommarinn hafi sagt skilið við hljómsveitina vegna persónulegra ástæðna. Nú hefur Jordison sent yfirlýsingu á Metal Hammer þar sem fram kemur að hann hafi ekki hætt í sveitinni. Hann heldur því fram að Slipknot hafi verið líf hans síðustu 18 árin og hann myndi aldrei gera aðdáendum sínum þann óleik að segja skilið við hljómsveitina. Trommarinn hélt svo áfram og sagði að fréttirnar hefðu komið honum jafn mikið á óvart og öllum öðrum en af lagalegum ástæðum gæti hann ekki sagt meira. Það er því nokkuð ljóst að ansi mikið hefur gengið á í herbúðum Slipknot að undanförnu en fyrir jól mætti söngvari þeirra, Corey Taylor, í viðtal við bandaríska útvarpsstöð þar sem hann staðfesti þær fréttir að Joey Jordison væri ekki lengur meðlimur í Slipknot en neitaði að segja meira um málið. Síðasta plata Slipknot kom út árið 2008 og er það platan All Hope Is Gone. En hljómsveitin hefur ekki tekið upp neitt nýtt efni frá því að bassaleikarinn Paul Grey lést af of stórum fíkniefnaskammti. Slipknot hefur þó komið fram á stöku tónleikum að undanförnu og þegar að hljómsveitin kom fram á Download hátíðinni á síðasti ári gáfu þeir í skyn að nýtt efni væri væntanlegt frá hljómsveitinni.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Sölvi með næstum fimmtíu ketti heima hjá sér Harmageddon Íslandsdeild Evrópusambandsins lögð niður Harmageddon Miðasalan á Eistnaflug er hafin. Harmageddon Metallica ætlar að selja riff á Ebay Harmageddon Vala Grand trúlofuð á ný Harmageddon Barði í Bang Gang í hljómsveit með Jean-Benoit úr Air Harmageddon Tónleikar sem munu breyta lífi þínu Harmageddon Vill að forystan axli ábyrgð og segi af sér Harmageddon Kostulegt samtal Frosta við Nígeríusvindlara sem lofar honum milljónum króna Harmageddon Obama hætti að reykja af ótta við eiginkonu sína Harmageddon