Aðeins einn frambjóðandi með X 977 húðflúr Frosti Logason skrifar 30. apríl 2014 12:48
Margir töldu útlitið vera orðið svart fyrir Framsóknarflokkinn í síðustu viku þegar Guðni Ágústsson hætti við að taka efsta sæti listans í Reykjavík. Á bak við tjöldin voru innanbúðarmenn þó ekki af baki dottnir og reyndist flokkurinn eiga nokkra sterka ása upp í erminni eins og nú hefur komið í ljós. Á kjördæmisþingi Framsóknarmanna í Reykjavík í gær var nefnilega tilkynnt að flokknum hefði tekist að landa mjög öflugum liðsauka á listann. Þar var átt við engan annan en útvarpsmanninn Rikka G af hinni fanta sterku stöð FM 957.Rikki á góðri stundu.Rikki, sem heitir fullu nafni Ríkharð Óskar Guðnason, hefur ekki áður tekið þátt í stjórnmálum svo vitað sé en ljóst er að viska hans og útsjónarsemi á eftir að reynast Framsóknarflokknum vel á komandi kjörtímabili. Rikki hefur marga fjöruna sopið og komið víða við en frægðarsól hans skein líklega hæst þegar hann fékk sér húðflúr með lógói útvarpsstöðvarinnar X-ins 977 í byrjun árs 2010. Þess má að lokum geta að þessi tenging Framsóknarflokksins við útvarpsstöðina FM 957 þarf ekki að koma nokkrum á óvart því áður hafa öflugir liðsmenn stöðvarinnar á borð við Heiðar Austmann og Egil Gillzenegger Einarsson báðir lýst yfir stuðningi sínum við flokkinn. UPPFÆRT: Vegna breyttra aðstæðna í starfi hefur Ríkharð ákveðið að draga sig alfarið í hlé frá stjórnmálum. Framsókn hefur nú þegar orðið við ósk hans um að vera færður af lista flokksins og mun flokkurinn því ekki njóta góðs af hæfileikum Rikka G. að þessu sinni.Rikki G fékk sér X 977 tattú árið 2010
Harmageddon Mest lesið Væntanlegt lag frá Muse alltof gróft fyrir útvarp Harmageddon Sannleikurinn: Að dreifa svínshræjum á lóð múslima svipað og skrifa greinar gegn kirkjunni í Morgunblaðið Harmageddon Sannleikurinn: Stofnfundur félags fólks með ofvirkni fór úr böndunum: Stofnuðu 7 önnur félög Harmageddon Segir umhverfisráðherra ekki notast við rök Harmageddon „Við sem þjóð við höfum aðra hagsmuni en einhver lítil forréttindaklíka í kringum forystu Framsóknarflokksins“ Harmageddon Myndband frá einum síðustu tónleikum Nirvana Harmageddon Segir Ísland síðasta vígi kristinna manna Harmageddon Royal Blood með þriðja lag sitt á toppi Pepsi Max listans Harmageddon "Það eru ekki allar stelpur svo heppnar að fæðast með píku" Harmageddon „Orðið helvíti hart þegar farið er að troða typpasleikjóum upp í börnin.“ Harmageddon
Sannleikurinn: Að dreifa svínshræjum á lóð múslima svipað og skrifa greinar gegn kirkjunni í Morgunblaðið Harmageddon
Sannleikurinn: Stofnfundur félags fólks með ofvirkni fór úr böndunum: Stofnuðu 7 önnur félög Harmageddon
„Við sem þjóð við höfum aðra hagsmuni en einhver lítil forréttindaklíka í kringum forystu Framsóknarflokksins“ Harmageddon
Sannleikurinn: Að dreifa svínshræjum á lóð múslima svipað og skrifa greinar gegn kirkjunni í Morgunblaðið Harmageddon
Sannleikurinn: Stofnfundur félags fólks með ofvirkni fór úr böndunum: Stofnuðu 7 önnur félög Harmageddon
„Við sem þjóð við höfum aðra hagsmuni en einhver lítil forréttindaklíka í kringum forystu Framsóknarflokksins“ Harmageddon