93 ára kona sem féll á bílprófi skotin af lögreglu er hún reiddist Finnur Thorlacius skrifar 9. maí 2014 14:15 Frá skotstaðnum fyrir utan heimili konunnar öldruðu.
Pearlie Golden frá Texas féll á ökuprófi sem henni var gert að þreyta og það líkaði henni ekki allskostar vel og því greip hún til skammbyssu og hótaði frænda sínum sem huggðist ná af henni bíllyklum bíls hennar. Frændinn kallaði eftir lögregluaðstoð og þegar hún kom á staðinn veifaði hún ennþá byssu sinni og var nokkuð niðri fyrir. Lögreglumennirnir báðu öldruðu konuna að leggja frá sér byssuna en því hlýddi hún ekki, hvort sem það var vegna slæmrar heyrnar eða óhlýðni. Viðbrögð lögreglunnar voru þá þau að hefja skothríð að Perlie og hæfðu tvö þeirra hana svo af hlaust bani. Nágrannar Perlie eru mjög undrandi á þessum viðbrögðum lögreglunnar og herma að gamla konana sé einkar viðfeldin kona og þar sem hún hefði ekki skotið til lögreglunnar eða annarra sé þetta óskiljanlegt. Lögreglumaðurinn hefur verið settur í launað frí og ekki er víst að hann snúi aftur til vinnu hjá lögreglunni. Þessi sami lögreglumaður átti einnig þátt í skotáras sem leiddi til dauða í fyrra og virðist því æði byssuglaður.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Tesla Cybertruck og Ferrari í Vestmannaeyjagöngum Sjá meira