Formúla 1 í Azerbaijan á næsta ári Finnur Thorlacius skrifar 9. maí 2014 09:32 Keppt í Baku í fyrra í FIA GT seríunni.
Haft var eftir Bernie Ecclestone í gær að ein af keppnunum í Formúlu 1 verði haldin í Baku í Azerbaijan á næsta ári og ekki verði keppt í S-Kóreu í staðinn. Á undanförnum vikum hefur verið ýjað að þessari breytingu en nú er hún staðfest. Keppt verður á götum í höfuðborginni Baku, en ljóst er að talsverð vinna mun þar fara í að útbúa brautina þannig úr garði að hún verði keppnishæf fyrir Formúlu 1 keppni. Þar voru reyndar verið haldnar FIA GT Seríu keppnir í fyrra. Þessi nýja keppni fær væntanlega heitið Prix of Europe eða Europe Grand Prix. Það var Flavio Briatore, fyrrum liðsstjóri Renault F1 liðsins, sem sá um samingsgerðina milli ráðandi afla í Azerbaijan og Ecclestone. Sumir hafa bent á að ekki séu allir hnútar rétt bundnir fyrir þessari ráðstöfun og sú staða að Bernie Ecclestone bíði nú ákæra vegna meintra mútugreiðslna gæti breytt þessum áformum. Aðrir eru einnig minnugir þess að áætlaður keppnisstaður í New Jersey í Bandaríkjunum og í Mexíkó varð aldrei að veruleika, þrátt fyrir að Ecclestone hafi tilkynnt um þá keppnisstaði. Því sé best að bíða eftir endanlegri tilkynningu keppnisstaða fyrir næsta ár.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent