Viðar með þrennu fyrir Vålerenga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. september 2014 18:14 Viðar Örn hefur farið hamförum á tímabilinu. Heimasíða Vålerenga
Viðar Örn Kjartansson heldur áfram að fara á kostum í norsku úrvalsdeildinni, en Selfyssingurinn skoraði þrennu þegar Vålerenga vann 4-1 sigur á Haugesund á heimavelli í dag. Viðar skoraði 32. og 34. mínútu og fullkomnaði svo þrennuna á þeirri 72. Hann er nú kominn með 24 mörk í 22 deildarleikjum og er langmarkahæstur í deildinni. Annar Selfyssingur, Guðmundur Þórarinsson, var einnig á skotskónum þegar Sarpsborg 08 vann 0-2 útisigur á botnliði Sandnes Ulf. Guðmundur skoraði fyrra markið á 26. mínútu og tólf mínútum síðar bætti Kristoffer Tokstad öðru marki við. Guðmundur fór af velli á 53. mínútu.Hannes Þór Halldórsson, Eiður Aron Sigurbjörnsson og Hannes Sigurðsson voru í byrjunarliði Sandnes og léku allan leikinn.Matthías Vilhjálmsson kom af varamannabekknum og skoraði annað marka Start í 2-3 tapi gegn Stabæk.Fredrik Brustad kom Stabæk yfir á 48. mínútu, en Matthías jafnaði metin á 67. mínútu, sex mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður.Andrew Jacobson náði forystunni fyrir Stabæk á nýjan leik á 72. mínútu og sex mínútum síðar bætti Franck Boli við marki. Ernest Asante klóraði í bakkann með marki í uppbótartíma. Guðmundur Kristjánsson lék allan leikinn fyrir Start sem situr í 12. sæti. Þá skildu Sogndal og Álasund jöfn með einu marki gegn einu. Hjörtur Logi Valgarðsson lék allan leikinn fyrir Sogndal.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Handbolti Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Enski boltinn Dagskráin í dag: Blikar mæta Shakhtar Sport Böl Börsunga í Belgíu Fótbolti Fleiri fréttir Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Sandra María skoraði í svekkjandi leik Emelía með þrennu gegn FCK Óvænt úrslit í Meistaradeildinni „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Dældi fyrri afrekum inn á Instagram eftir vonbrigðin Valdi Isak en ekki Gyökeres í fyrsta landsliðshópinn sinn Leiðir Breiðabliks og Damir skilja Mál Alberts truflar landsliðið ekki Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Vonar að Jóhann og Hörður gefi jafn mikið af sér og Aron Orri Steinn lengra frá því að ná þessum leikjum en þeim í síðasta glugga Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Svona var blaðamannafundur Arnars Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Ánægð með að mæta Íslandi „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag Sjá meira