Viðar Örn syngur Creed-lag inn á plötu til styrktar Vålerenga Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. október 2014 14:45 Viðari Erni er margt til lista lagt. mynd/vif.no
Viðar Örn Kjartansson, framherji Vålerenga og markahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, leggur sitt af mörkum í nýrri herferð Óslóarfélagsins. Vålerenga reynir nú að fá stuðningsmenn félagsins til að fjárfesta í því, herferð sem kölluð er Det er vi som er Vål`enga. Norski tónlistarmaðurinn og útgefandinn David Eriksen, sem er mikill stuðningsmaður liðsins, fékk Viðar Örn til að syngja Creed-lagið My Sacrifice inn á plötu, en lagið verður svo gefið út í vikunni. Fram kemur á heimasíðu Vålerenga að lagið mun kosta tólf krónur og rennur hagnaðurinn óskertur til félagsins. Það verður hægt að kaupa það á iTunes, cdon.com, platekompaniet.no og Spotify í vikunni. Þó Viðar Örn sé ekki alveg sami söngfuglinn og félagi sinn frá Selfossi, GuðmundurÞórarinsson, þá hefur hann gaman að því að syngja. Viðar Örn stimplaði sig inn hjá stuðningsmönnum Vålerenga fyrr í sumar þegar hann söng Creed-lagið "Six Feet From The Edge" á kynningarfundi á nýjum leikmönnum liðsins. Þá var hann duglegur að syngja og dilla sér við poppmúsík þegar hann var yngri eins og kom fram í skemmtilegu sjónvarpsviðtali við hann í Noregi fyrr í sumar. Viðar Örn er langmarkahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar með 25 mörk.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Shakhtar - Breiðablik 2-0 | Breiðablik átti sín augnablik Fótbolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Njarðvík - Stjarnan | Komast meistararnir í gang? Körfubolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Handbolti ÍA - Valur 81-83 | Grátlegt tveggja stiga tap á nýjum heimavelli Körfubolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Fleiri fréttir Íslendingaliðið sótti stig og Aston Villa vann mótmælaleikinn Sex handtökur í mótmælum fyrir leik í Evrópudeildinni Emilía skoraði annan leikinn í röð Logi á toppnum en Hákon á bekknum Shakhtar - Breiðablik 2-0 | Breiðablik átti sín augnablik Ronaldo og félagar spila landsleik í sérstökum Eusébio-búningi Ólöf og Írena báðar í úrvalsliði Ivy-deildarinnar Suárez dæmdur í bann fyrir hælspark í mótherja og missir af risaleik Pálmi í ótímabundið leyfi Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst „Ég og Nik erum ágætis vinir“ „Vel gert að geta haldið áfram í svona ástandi“ Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Mörk úr Meistaradeildinni: Sjáðu Osimhen hoppa upp fyrir Mbappé og Haaland Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Sandra María skoraði í svekkjandi leik Emelía með þrennu gegn FCK Óvænt úrslit í Meistaradeildinni „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Sjá meira